Iðunn : nýr flokkur - 01.01.1930, Blaðsíða 84
78
Ársrit Nemandasambands Laugaskóla.
IÐUNN
um, sem ætla sér að hverfa að háskólanámi, þar sem
krafizt er sjálfstæðra rannsókna.
Það lætur að líkindum, að mér sé ókleift að gefa
upplýsingar eða fella dóm um það, hvernig Laugamenn
hafi leyst aðalnám sitt af hendi, þar sem ég hefi aldrei
komið í Þingeyjarsýslu. I því efni verður einkum að fara
eftir áliti prófdómanda, sem birt er í Ársriti Nemanda-
sambands Laugaskóla (skólaskýrslu). Dómur þeirra sýn-
ist yfirleitt vera á þá leið, að næg reynsla sé þegar
fengin fyrir því, að sjálfgert sé að halda þessari náms-
tilhögun áfram.
Þá er að minnast á val aðalnáms. Æskilegast er vit-
anlega, að það sé valið í sem flestum greinum. Mér
þykir trúlegt, að gaman sé að skoða smíðisgripi og aðra
handavinnu Laugamanna á vorin.
Af því, sem áður er sagt, má sjá, að furðumargir
nemendur að Laugum hafa valið sér íslenzk fræði að
aðalnámsgrein. Mér finnst kjörsvið nemanda innan þeirrar
aðalnámsgreinar mjög misheppileg. Heppilegast væri vit-
anlega, að þeir veldi sér viðfangsefni, sem þeir hefði
skilyrði til að vinna svo úr, að öðrum mönnum gæti
einnig komið það starf þeirra að notum, enda væri úr-
lausnir jafnharðan birtar í Ársriti Nemandasambands
Laugaskóla eftir því, sem föng væri á eða jafnvel komið
annars staðar á framfæri. Með þessu móti gæti Ársrit
Laugamanna með tímanum orðið álitlegt safnrit til menn-
ingasögu Þingeyjarþings og fleiri héraða.
Eg hefi lesið með ánægju ritsmíð Sigrúnar Ingólfs-
dóttur um Skarphéðinn í 1. árgangi Ársritsins og dáð
þá alúð og smekkvísi, sem ungfrúin hefir sýnt í meðferð
efnis og máls. En mér dylst ekki, að slík ritgerð getur
verið sumum nemöndum óheppileg fyrirmynd og getur
leitt til misjafnrar meðferðar á hinum skáldlegu mann-