Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Side 8

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Side 8
330 Frá heimsstyriöldinni miklu. IDUNN leiftruðu. Hver einstaklingur var hafinn í nýtt veldi. Herinn var magnaður krafti heillar þjóðar. Fram til orustu, til varnar fyrir föðurlandið. Hinar fagnandi miljónir óraði ekki fyrir, hvað þeirra beið; vissu ekki, hvað stríð var. Vmsar frásagnir lifðu frá 1870. Unglingarnir drukku þær nú af vörum hinna öldruðu, er þá höfðu verið börn. Að öðru leyti gerðu menn sér litla grein fyrir stríði, hugðu, að það stæði aðeins stuttan tíma yfir, trúðu á skjótan sigur. Menn dreymdi um einvígi og afreksverk. En ásjóna stríðsins var alt önnur en hermennirnir höfðu gert sér í hugarlund. Þeir verða brátt fyrir mestu vonsvikum. Hin karlmannlega þrá eftir afrekum og frægð fær ekki svölun. Einstaklingurinn og dáðir hans drukkna í hafi fjöldans. Ovinina er hvergi að sjá, en samt eru þeir alstaðar nálægir. I stað heitra vopnaskifta og blóðugra bardaga ríkir á vígstöðvunum eilíft tilbreytinga- leysi1)- Ekkert gerist, en samt er stöðug hætta, og dauðinn sifelt á næstu grösum. Þannig verður ástandið í hinum seigdrepandi vígstöðuhernaði. Endalaus bið. Eilífur ótti. Aldrei nein svölun í athöfnum og afrekum. Stríðið er óskiljanlegur, miskur.narlaus, lamandi máttur. Kvörn, sem malar miljónirnar. Skriðjökull, er eyðir öllu lífi á leið sinni. En stöku sinnum breytist vígvöllurinn í gjósandi eiturgíg. Hrylling og skelfing í hverri taug. Ogn og dýrsleg grimd. Fögnuður liðsins frá ágúst 1914 deyr snemma út. Stríðið kendi mönnum alvöru og orðfæð. Hrifningin þvarr algerlega. Hin leiftrandi, Iífþrungnu hugtök í stríðs- byrjun mistu gildi sitt. »Að lokum eru það aðeins fáeinir hér á jörðu, sem menn með glöðu geði vildu fórna sér 1) Svo hemur hermönnunum, er alls annars höföu vænst, ástandið á vígvellinum aftur og aftur fyrir sjónir.

x

Iðunn : nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.