Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 16

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 16
338 Frá heimsstyrjöldinni miklu. IÐUNN fil að bjarga sér úr flóðinu upp á tindinn. En það er þó eiginlega fyrst réttmætt eftir hörðustu baráttu« (»Aus dem Kriege*, 9. okt. 1917). Dæmi Bindings sýnir, að sigurinn varð ekki unninn með vopnum, heldur fyrir innri baráttu. Og í raun og veru felst í skoðun Bindings réttlæting á stríðinu og dýrðleg trú á mennina, er ekki láta bugast fyrir miskunnarlausum örlögum. Eftir Binding eru ljóðmælin »Stolz und Trauer* (1922) og bréf úr stríðinu »Aus dem Kriege* (1925). Hann var öll ófriðarárin í stríðinu, en særðist skömmu áður en friður komst á. Hann var undirforingi. Herlæknirinn fians Carossa: Rumanisches Tagebuch« (1924) sér striðið í ljósi víðfeðmrar trúar eða með aug- um trúaðs skáldspekings. Það er fyrir honum einn þáttur mannlegra örlaga, ógnarlegt og óskiljanlegt. En hann sér þar niður í dulardjúp lífsins sjálfs. Það er ekki svo, að hann vilji fegra stríðið eða réttlæta sem stríð fyrir guð eða föðurlandið. Það er böl, illur veruleiki, en það sviftir burt öllum takmörkunum. Hann trúir, að úr þessu böli geti verið blessun að vinna. »Já, leitum vér hættu og erfiðis, þar sem það býðst, þá undirbúum vér oss fyrir æðra erfiði, sannari hættu. Mér fer eins og manni, sem enn ekki þekkir starf sitt. ,Rændu Ijósinu úr gini slöngunnar!1 Hvaða rödd er það, sem hrópar oft þessi orð til mín úr djúpum svefni?* Rændu ljósinu úr gini slöngunnar. Það eru einkunnarorðin fyrir bókinni. En lífið reiknar ekki í árum og einstaklingum. »Hvað segja fyrir lífið mistök í miljarðatali? Það getur myndað blað úr þyrni, rós úr blaði; það hefir nægar aldir og stjörnur til þess að ummynda og umskapa, en einhvern tíma mun það samt sveiflast eins og andinn vilU. Fyrir hann hafa ekki einstaklingarnir tilgang í sjálfum sér, heldur sem þjónar lífsins og framsóknar þess. Einstak-

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.