Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 48

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Page 48
370 Ferðaminningar. IÐUNN Hefir þú nú annars nokkuð gaman af að sofa í bólstr- uðum vagni og vita at mér, sem engist hér á hörð- um ávölum trébekk með margumrædda hornbrík undir hnakkanum? Jæja, þér er sama. Þú segir, að þig varði ekkert um mig. Þú segist vera af annari þjóð, og umhyggja þín nær ekki lengra en til þjóðar þinnar. Þar er fjölskylda þín auðvitað fyrst og fremst í björtu náðarljósi, hund- urinn þinn líka, og hitt fólkið er þér meinlaust við. Síðan er þér sama um alla aðra menn, bara ef neyðar- ópin í þeim halda ekki fyrir þér vöku, og þú lest geisp- andi fregnir í morgunblöðunum, sem skýra frá því, a& nokkurar þúsundir manna hafi drepizt úr hungri eða drukknað í vatnavöxtum austur í Asíu. — Heyr firn mikil, mundu gömlu mennirnir hafa átt að segja. En nú veit eg, hvað við gerum til þess að forðast yfirvofandi eldhættu. Við setjum saman skjal og skýrum viðeigandi forráðamönnum frá því, að við ósk- um breytinga á fyrirkomulagi lestarinnar. Fyrst og fremst óskum við eftir þægilegri þriðja flokks vögnum með engum hornbríkum undir hnakkanum. Við viljum helzt hafa alla vagna eins, alla þægilega. Hvað á maður að gera við óþægilega vagna á tuttugustu öld? Svo er bezt, að við fáum einn eða tvo rándýra aukavagna í lestina, ef svo skyldi fara, að einhverjir ferðamenn rækist upp í hana, sem ekki þættist upp á það komnir að ferðast í sams konar vistarveru og við. Þeirra vagn gæti til dæmis verið með fjólubláum bólstrum. Hinn aukavagninn yrði svo fyrir þá, sem hvorki vildi vera innan um okkur né fólkið á fjólubláu bólstrunum. Hann gæti verið með grænum bólstrum. En þetta umbótafrumvarp þarf að senda tafarlaust til æðri staða, annars getur allt farið í bál og brand. Sem

x

Iðunn : nýr flokkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.