Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Síða 81

Iðunn : nýr flokkur - 01.10.1930, Síða 81
IÐUNN Þrjár bækur. 403 andi og hvöss eins og bitur egg. Víða verður stíllinn magnaður af seiðandi ró dalamálsins og hvorttveggja í senn, þrunginn af auðmýkt og tign. Vil ég í því sam- bandi nefna kaflana: Um bækur, Þjóðerni, Jónas Hall- grímsson og þó einkum þar, sem hann talar um Charles Chaplin. Eg gæti nefnt miklu fleiri kafla. En þetta er nóg. Þessir kaflar eru Alþýðubókin, boðskapur nýtímans til íslenzkrar alþýðu, boðskapurinn um manninn, hinn frjálsa þegn jarðarinnar, sem full er af fegurð og gæð- um, fyrirheitum og vonum. — Enginn hefur túlkað þetta mál eins innilega og djarflega á íslenzku og Halldór Kiljan Laxness. Það eru kaflar í Alþýðubókinni, sem ég hefði kosið áð ekki væri þar, hugsanir, sem hafa sært mig, setn- ingar, sem verka eins og ör á fagurri ásjónu. En jafn- framt finn ég til þess, að gagnvart slíku verki hef ég ekki leyfi til að óska neins. Bókin líður að Iestrarlokum fyrir augu mín eins og voldugur náttúrukraftur, eins og beljandi elfur, sem ryðst fram í þrengslum og rífur úr bökkum sínum og er grá af tryltri öfugbáru í straum- sveipunum. En hún ber með sér kynstur af frjómögnum niður á láglendið, þar sem mennirnir iða eins og maurar — og verðmætin gróa undir höndum þeirra. Bók Halldórs hefur sætt hinum verstu dómum, eins og við mátti búast um rit, sem skrifað er af ástarhug til alþýðu og trú á efnalega og menningarlega viðreisn hennar. Umboðsmenn guðs og góðra manna hafa komið fram hver um annan þveran og óvirt höfundinn og verk hans. Það hefur jafnvel verið ráðist á einkalíf hans og rifstörf úr sjálfri þinghelgi, og mér er kunnugt um það, að kuldalega hefur verið sveigt að honum af prédik- unarstólum. Ekki get ég að því gert, að mér finst fara vel, á öllu þessu, og að öllu leyti eins og efni standa til. I skjóli slíkrar óvildar vex hróður hvers afreksmanns. Og þóft segja megi um Halldór Kiljan, að hann njóti hennar nú í ríkulegum mæli og með sóma, þá má ekki dyljast þess, að enn sem komið er, er það einkum fyrir ýmsar smáglettingar í málfari og listrænum vinnubrögðum, en
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Iðunn : nýr flokkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðunn : nýr flokkur
https://timarit.is/publication/442

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.