Kirkjuritið - 01.01.1947, Qupperneq 23
Kirkjuritið.
Menntun presta á íslandi.
17
Sá prestur íslenzkur, sem mestar sögur fara af, a'ð
lagt liafi stund á, aö kenna ungum mönnum klerkleg
fræði á 11. öld, var Isleifur Gizurarson Iivíta. Faðir
kans, sem með skörungsskap sínum átti merkastan
þátt i, að koma kristni á ísland, lagði síðan allan hug
á að styrkja kristnina, og hefir lionum eigi dulizt það,
að til þess þurfti fyrst og fremst lærða kennimenn. Kom
kann því ísleifi syni sínum ungum í nunnuskóla á Sax-
landi, í stað þann er Herfurða heitir (Hervorden í
Westphalen, sem þá var ein hin nafnkunnasta mennta-
stofnun á Norður-Þýzkalandi og útklaustur frá hinu
fræga meuntasetri í Corvey-klaustri. Var skóli hinnar
tiginbornu al)hadísar í Herfurðu undir eftirliti Megin-
verks biskups í Paderhoru, mikils fornmenntavinar, og
er enginn efi á, að þar liefir ríkt strangur agi og mikil
alúð verið lögð við kennsluna.
I þessum skóla hefir ísleifur alizt upp og stundað
nám, frá ungum aldri og fram yfir tvítugt. Hefir hann
þá verið orðinn forkunnarvel menntaður eftir þeirrar
tíðar liætti, er hann kemur heim til íslands, prestsvígð-
ur. Ef marka má þáttinn af lionum í Flateyjarljók, get-
ur þetta ekki hafa verið síðar en 1027 og liefir Isleifur
þá ekki verið nema tuttugu og eins árs gamall og þá
íengið undanþágu til prestsvígslu. Þó að það sé reynd-
ar fremur ólíklegra, má þó vera að svo hafi verið gert,
vegna prestafæðar hér.
Það má telja mikla hamingju fyrir íslenzku kirkj-
una, að fyrsti islenzki prestakennarinn, sem sögur fara
af, og hinir erlendu kirkjuliöfðingjar, er hér störfuðu á
undan honum, voru yfirleitt vel lærðir menn, og i
ueinu sambandi við hina merkustu klausturskóla í
Norður-Evrópu. Hafa þeir flutt með sér fágaða helgi-
«ði þessara stofnana, vandlæti um tíðaflutning allan,
svo og miklu víðtækari þekkingu um guðfræði og öll
visindi þeirrar aldar, en ella mundi. ísleifur liefir margt
lært á þeim 10—15 árum, sem hann héfir dvalið í nunnu-
KirkjuritiS 2