Kirkjuritið - 01.01.1947, Side 40
34
Ófei gur Vigfússon:
Jan.-Marz.
og frásagnir um hann sjálfan og afrekun hans, hefir
þó reynzt milljónum og aftur milljónum mannssálna
sannur gleðilegur boðskapur, sem hefir hætt þeim alla
fátækt og' auðgað þá að „eilífum og' æðstu gæðum“;
leyst þá úr þvingandi þrældómshlekkjum; opnað þeim
bjarta vfirsýn yfir þetta jarðneska líf og innsýn inn í
eilífðina, gegnum gröf og dauða, og gefið þeim þjáð-
um frið í lífi og dauða. Og þá bafa þeir jafnframt líka
fundið, að til þeirra og yfir þá var komið liið síðasta
og bezta: „Hið þóknanlega ár Drottins“. Og enn meira
segir sagan og' sýnir reynslan oss, að jafnvel sjálfir ó-
vinir og ofsækjendur Krists liafa þó haft og' hafa nú
yfrið margt og mikið gott af hoðskap og endurlausnar-
verki lians, bæði af því, að þeir sjálfir eru eða verða
ósjálfrátt meira eða minna snortnir af anda og krafti
Krists, og' af því, að vegna álirifa Krists á aðra mæta
þeir hér minna liörðu gegn hörðu eða ilíu á móti illu;
og eru einnig, ef til vill, ekki heldur alveg eins þræl-
bundnir, ekki alveg eins starblindir eða friðvana og'
vonlausir við tilkomu nauða, dauða og eilífðar, eins og
ella mundi.
Þetta segir nú sagan og sýnir reynslan oss. En við
böfum líka sjálfsreynslu eða tilfinningu hið innra með
oss, og eigin mat og dómgreind. Vér finnurn og skiljum,
að minnsta kosti með hjartanu, að ef vér gætum lifað
og breytt vel eftir boðskap Krists eða orðið líkir bon-
um í trú, lifsskoðun og líferni öllu, þá hlyti allt að
verða miklu betra, fallegra og yndislegra lijá oss, meðal
vor og fyrir oss, bæði þessa heims og annars — alveg
eftir hlutarins eðli. Svo fagur og sannur er hoðskapur
Krists, og svo dýrðlegt allt dæmi hans og verk; og svo
vel samrýmist og fullnægir það því innsta, bezta og'
sannasta í sálu vorri; og því meir og betur sem vér
þekkjum og' skiljum Drottin vorn betur. Fyrir oss get-
ur því boðskapur Krists og mál lians um ætlunarverk
lians, ekki verið nein fjarstæða, heldur þvert á móti,