Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 8

Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 8
366 KIRKJURITIÐ En aðrir virðast fara ýmsar aðrar leiðir, ýmist í smáu eða stóru. Og fólkið, sem í kirkjunni er, virðist oft ekkert vita, hvernig það á að haga sér. Hér ber mjög á milli vorrar kirkju og katólskrar, og skal ég engan dóm á þennan ágreining leggja að svo komnu máli. Hér eru tvær stefnur, stefna kirkjunnar, stofnunarinnar, • og stefna trúarflokkanna, sektanna, sem haga öllu eins og þeim sýnist. Samkomur eru haldnar í hvaða húsum, sem tilkippileg eru, eða jafnvel úti. Presturinn er klæddur eins og aðrir og hann gerir það, sem honum sýnist. Hann hefii’ ef til vill ekkert altari og engan prédikunarstól. Hann þarf ekki að snúa sér eða hreyfa sig eftir neinum föstum reglum frekar en hver annar ræðumaður eða stjórnandi samkomu. Hann ákveður, hvað sungið er eða hvort sungið er. Hann tónar ef svo vill verkast eða sleppir því. Fólkið stendur upp af vana úr kirkjunum eða alls ekki, eða miklu oftar. Hér er lífið sjálft óbundið. Hér hjá oss er kirkja, þjóðkirkjan. Hún hefir sína helgi- siðabók, hvort sem hún er löggilt eða ekki, og lærða presta, embættismenn kirkjunnar. Hér er þvi stofnun, og mætti búast við því, að hér færi því guðsþjónustan fram í föstu sniði. En hún sýnist vera undir miklum áhrifum hinnar stefnunnar, trúflokkastefnunnar. Á að liafa fasta helgisiði eða ekki? Kirkjan þarf að koma sér niður á það, hvort hún vill hafa fasta helgisiði eða ekki. Úr þessu er í raun og veru skorið, ef kirkjan hefir lög- gilta helgisiðabók, eins og sjálfsagt virðist vera. Kirkjan hefir þá fasta helgisiði og ætlast til þess, að þeir séu hafðir í heiðri. Prestsefnin læra beinlínis að fara með þessa helgisiði eða eiga að læra það. Og þessum helgisiðum er fylgt í megin dráttum. Hvar sem komið er til guðsþjónustu í þjóðkirkjunni, fer hún

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.