Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 10

Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 10
368 KIRKJURITIÐ fasta og ákveðna helgisiði, jafnhliða því, sem hún vitan- lega leyfir allar aðferðir við hvers konar samkomur og vakningaathafnir, sem einstakir prestar hafa um hönd og telja til góðs að hafa? Ég er þeirrar skoðunar: 1. Að þar sem helgisiðabók kirkjunnar mælir fyrir um ákveðnar athafnir, beri prestum að fylgja þeim alveg út í æsar. 2. Að þetta sé prestunum sjálfum mestur styrkur í starfinu. 3. Að út frá þessu eigi að haga helgisiðabókinni. Mæla nákvæmlega fyrir um það, sem fylgja ber. Geta þess skýrt, þar sem um ráðleggingar er að ræða. Og loks láta alveg laust um það, sem prestum er lagt á sjálfsvald. Þetta ætla ég ekki að rökstyðja frekar áð sinni. Ég tel þetta nauðsynlegt fyrir kirkjuna sem stofnun. Og mér finnst það undarlegt ræktarleysi og óhlýðni, ef prestar vilja ekki gera svo lítið fyrir móður sína eins og þetta, jafnvel þó að þeim finnist þeir sjálfir vitrari. Tfelgisiðabókin. Það er í raun og veru engin furða, þó að fólkið, kirkju- gestirnir, ruglist stundum í ríminu, því að þetta ólag kemur alla leið frá hæstu stöðum, helgisiðabókinni og prestunum- Helgisiðabókinni þurfum við alltaf að vera að breyta. Ekki eldri en ég er, man ég þó eftir þrem helgisiðabókum í notkun. Fram eftir aldri mínum var notuð Handbók presta frá 1879. Ég er prestssonur og heyrði föður minn ávallt fara með allt eftir þessari handbók. Þegar ég varð sjálfur prestur, var búið að umturna öllu með Helgisiða- bókinni frá 1910. En ekki mátti við svo búið standa, og kom ný helgisiðabók 1934. Eiri helgisiðabók fyrir hverja prestakynslóð og vel það. Jafnvel „Faðir vor“ og trúarjátn- ingin breytast. Og ef svo fer um hin grænu trén, hvernig mun þá fara um hin visnu? Þó að þessi síðasta helgisiðabók hafi vissulega sína kosti,

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.