Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 12

Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 12
370 KIRKJURITIÐ sér að altari“. Höfundar bókarinnar hafa ekki staðizt þessa nýjung.1) 1 helgisiðabókinni 1910 stóð: „-les meðhjálp- arinn eða einhver af söfnuðinum þessa bæn í kórdyrum“. En um bænina eftir messu er þar gefið undir fótinn með að losa söfnuðinn við ónæðið, því að þar segir, að sleppa megi henni, ef prestur og söfnuður verða sammála. Sí- felldar breytingar og los. Prestarnir. Eins og ég sagði fyrr, eiga prestar ekki óskilið mál um meðferð á helgisiðum. En af þeim frekar fáu, sem ég hefi komið til, víkja flestir eitthvað meira og minna frá helgi- siðareglunum. Ýmsir segja til dæmis ,,Amen“ á eftir pistli og guðspjalli fyrir altari. Þetta var ekki gert, meðan tónað var, og á ekkert frekar að vera, þótt nú sé lesið, enda gerir þetta enginn sá prestur, sem vandar sig um helgisiði. Þá er jafnvel nokkur glundroði um það, hvernig prestur snýr sér fyrir altari. Ég skal að vísu játa, að ég er ekki mikill helgisiðafræð- ingur. Mér er það ekki heldur neitt kappsmál, að lesa hér inn í nein vísindi, heldur hitt, að íslenzka þjóðkirkjan og prestar hennar viti, hvað þeir vilja í þessu, og hafi eina og sömu aðferð. Mér finnst til dæmis, að prestur eigi ávallt að snúa sér fyrir altari sólarsinnis, en ekki rangsælis. Þetta er lítið, en í helgisiðum eru það oft smámunirnir, nákvæmnin, sem sker úr. Og mér finnst hægt að marka mjög skýra reglu um það, hvenær prestur snýr sér að altari og hvenær frá því. 1 kirkjunni er altarið tákn Guðs nærveru. Það er á tákn- legan hátt Guð sjálfur. Þess vegna snýr presturinn sér ávallt að altari, þegar hann beinir orðum sínum til Guðs. 1) Ég sé nú, mér til gleði, að leikmaður les bænina í dómkirkjunni.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.