Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 15

Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 15
HELGISIÐIR 373 halda fornri venju. Skírnarathöfnin truflast aðeins við það, að söfnuðurinn rís úr sætum og stendur langa hríð. Sakra- mentin fara bezt fram í sem mestri kyrrð og andagt. Og svo er þess að gæta, að þegar skriðan er farin af stað, heldur hún áfram. Fleiri og fleiri tilefni fást til þess að standa upp. Fólkið stendur upp við fermingar hér í Reykjavík, þeg- ar þess eigið barn er fermt, og einhver hópur með því. Þetta gengur eins og smágos hingað og þangað um kirkj- una. Á samkomum í KFUM er það siður að standa upp, með- an „Son Guðs ertu með sanni“ er sungið. Vitanlega getur hver félagsskapur sett sér slíkar reglur. En nú er þetta komið inn, að minnsta kosti í sumum kirkjum hér. Hvers vegna? má spyrja. Ekki skal ég varpa rýrð á þetta dásamlega vers Hall- gríms Péturssonar. En hvers vegna á ekki að standa upp fyrir „Víst ertu, Jesú, kóngur klár“ eða „Jesú, þín kristn- in kýs þig nú“, sem er bein konungshylling? Svo komu prestarnir á synodus og samþykktu fyrir nokkrum árum að syngja í hver messulok „Faðir and- anna“ og standa upp á meðan. Enn má spyrja: Hvers vegna? Svarið er það sama og áður: Bezt að hafa þessa siði einfalda, eins og verið hefir, og halda sér þar að, nema helgisiðabókin ákveði annað, og fylgja því þá út i æsar, en ekki út í öfgar og ýkjur, eins og hinni óheppilegu ráð- leggingu í skírnarformálanum. Aðrar atliafnir. Mér er sagt, að prestar hafi ýmiskonar athafnir og helgisiði um hönd við jarðarfarir. Ég játa það, að ég kem sjaldan í kirkju við jarðarfarir. Allt það prjál, og útvarp og sólósöngvaf og ég veit ekki hvað, er í mínum augum svo óendanlega höttótt við hið einfalda ritual dauðans, að ég á bágt með að vera þar við.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.