Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 20

Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 20
378 KIRKJURITIÐ Freysgyðlingar. Til Freyshelgi bendir og nafnið Freysnes. Má því víst þykja, að höfuðhof héraðsins, sem staðið hefir hér að Hofi, hafi einkum verið helgað Frey, goðmagni frjósemi og auðsældar. Þegar landsmenn snerust til kristni um 1000, mun hafa farið hér sem víða annars staðar, að helgidómurinn hélzt á þeim stað, sem verið hafði, heiðnu hofi var breytt í kristna kirkju. Ekki er hennar þó beinlínis getið í heimildum fyrr en í máldaga 1343, er sýnir, að hún er þá allauðug orðin og hér á að vera prestur og djákni. Til Hofs lágu þá og tvö bænliús, sem ekki er ljóst, á hvaða bæjum hafa verið. Kirkja hér á Hofi var í pápiskum sið helguð Clemens páfa. Hún efldist eftir því sem leið á miðaldir, meðal annars þegar eignir Eyrarhorns- kirkju voru lagðar henni 1482. En í lúterskum sið hafa prestar ekki setið hér, en kirkjan jafnan verið annexía frá Sandfelli- Sitthvað mætti eflaust grafa upp í gömlum heimildum um sögu kirkju og kirkjugripa hér á Hofi á seinni öldum. Það hefi ég lítt kannað, en allt virðist mér benda til, að eftir siaðskipti hafi kirkjur verið hér smáar og í fátæklegra lagi. Kirkja sú, sem vér erum nú stödd í og biskup landsins hefir vígt í dag eftir rækilega viðgerð, var byggð á árunum 1883—84 og er því ekki nema 70 ára gömul. Kirkjuna smíðaði Páll snikkari Pálsson, sonur Páls prófasts Pálssonar í Hörgsdal, gáfumaður mikill, smiður sæmilegur og afkastamikill og smíðaði margt um sína daga, einkum hér í Skaftafellssýslu. Þó að ekki sé kirkjan eldri en þetta, var hún á síðustu áiaim orðin það lasin, að ekki voru tiltök annað en gera við hana alveg frá rótum eða eyðileggja hana að öðrum kosti og byggja nýja kirkju. Kom þá þegar til orða, að þar sem torfkirkjur i hinum gamla íslenzka stíl væru nú svo fáar eftir orðnar í land- inu, væri athugandi, hvort ekki væri rétt að láta þessa kirkju standa í sinni gömlu mynd. I maí 1952 kom ég hingað austur, og virtist mér þetta ráð vera hið eina rétta. Var og sýnilegur áhugi sóknarmanna og tryggð við gömlu kirkjuna, og héraðs- prófastur, sem lengi hefir verið sóknarprestur að þessari kirkju, var málsins einnig fýsandi. Menntamálaráðuneytið heimilaði, að kirkjan yrði tekin á fornleifaskrá og til viðgerðar hennar varið fé af þeim fjármunum, sem árlega eru veittir til viður- halds gömlum byggingum, er menningarsögulegt gildi hafa- Með sérstökum samningi afhenti söfnuðurinn þjóðminjaverði

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.