Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 27

Kirkjuritið - 01.10.1954, Síða 27
SAMSTARF PRESTA OG LÆKNA 385 læknir í Reykjavík, sem nú er formaður félags vors, fram í fyrirlestri, sem hann hélt í Ólafsvíkurkirkju hinn 4. sept. 1948, á fundi í prestafélagsdeildinni „Hallgrímsdeild". Sá fyrirlestur birtist síðar á prenti í tímaritinu Víðförla, 4. hefti 1948, og nefndist þar Sálgæzla, samstarf presta og lækna. Hann hélt því fram þar, að trúarþörf mannssálarinnar væri svo sterk, að það hefði illar afleiðingar að vinna gegn henni. Þetta tekur svissneski læknirinn Poul Tournier til meðferðar í ritum sínum. Hann talar um hjálp, sem menn fá veitt, og hjálp, sem Guð einn getur veitt, til þess að fá lækningu þeirra sjúkdóma, er hugann þjaka. Skriftirnar telur hann mikla hjálp, en það er mannleg hjálp. Hin guðlega hjálp er fólgin í fullvissu um fyrirgefningu synda sinna, fólgin í friði Guðs, sem er æðri mannlegum skilningi. Margir kristnir læknar leggja nú mikla áherzlu á gildi skrift- anna. En skriftir nefnast það, að segja presti, lækni eða ein- hverjum trúnaðarmanni frá öllu því, sem hugann þjáir. Fátt er meira virði fyrir mannssálina en það, að hún þurfi ekki ein að bera þungar byrðar lífsins. Það er gott að eiga trúnaðarvini, sem algerlega er hægt að treysta. Að geta opnað sálu sína, sín leyndustu hugskot, fyrir öðrum. Þá er byrðin ekki lengur borin &f einum, heldur tveimur. Pólk þarf almennt að vita, að bæði prestar og læknar eru bundnir algerri þagnarskyldu um allt, sem þeim er trúað fyrir. Það þarf enginn að óttast, að þeir ljósti upp leyndarmálum. Þeir mundu fyrr deyja, eins og prestarnir á Ítalíu, sem Musso- hni lét taka af lífi fyrir það eitt, að þeir fengust ekki til að segja frá leyndarmálum, sem andstæðingar hans höfðu trúað Þeim fyrir. Er ég nú hefi minnzt á skriftirnar, vil ég geta þess, að margir læknar halda því fram í ritum sínum, að það sé skriftunum að Þakka, að minna ber á taugaveiklun meðal kaþólskra manna en Mótmælenda. En skriftir eru skylda enn í dag í kaþólsku hirkjunni. Þess vegna segja þeir, að Mótmælendakirkjan eigi að taka upp þennan sið. Þeir vilja gera hverjum manni að skyldu að skrifta að minnsta kosti einu sinni á ári fyrir presti sínum. Margir prestar eiga enn því láni að fagna, að sóknarbörn þeirra leita til þeirra með vandkvæði sín. Og þjóð vor er nú

x

Kirkjuritið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.