Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 35

Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 35
SÉRA JÓNMUNDUR HALLDÓRSSON 393 an þátt í þeim. Af lífi og sál tók hann virkan þátt í fund- nm og starfi Prestafélags Vestfjarða. Sótti hann jafnan fundi þess, nema tvo, síðan ég flutti hingað til fsafjarðar. Á þá fundi gat hann ekki komið, en sendi öðrum þeirra dýrlegt bréf, sem væri þess vert, að kæmi fyrir almenn- ingssjónir. Oft flutti hann í sambandi við félagsfundina kristileg erindi fyrir almenning. Og Lindinni, tímariti fé- iagsins, sendi hann fjölmargar greinar, sem vitna um trú- arhita höfundar síns, einlægan kristniboðsáhuga hans og iöngun að ná til lesanda síns með máli sínu. Honum var létt um að skrifa og áhlaupamaður á því sviði sem öðru. Séra Jónmundur er mér tvímælalaust sá minnisstæð- asti maður, sem ég hefi kynnzt. Hann hafði allt til þess að bera. Hann var höfði hærri flestum mönnum og þrekinn að sama skapi. Hann bar kraftinn utan á sér og skapið var bæði mikið og heitt, þar byltist dýpst í barmi logandi eldur, sem brann svo að segja með sömu glóð allt til ævi- l°ka. Hann gat verið harður í horn að taka, en hann var líka tilfinninganæmur, kom það meðal annars fram í umhyggjusemi hans. Hann var mér mildur og hjálp- samur, og drengur í raun. Ég hefi honum því mikið að bakka fyrir margan veittan greiða sem embættisbróður °g vini, sem ég vil hér með þakka fyrir af einlægum huga. Það er tómlegra síðan séra Jónmundur leið. Það er sem svipmynd Vestfjarða hafi breytzt og þeir tapað við fuáfall hans. Það er sem einn núpurinn, sem prýðir svo Vestfirði og ver þá hinni þungu haföldu, hafi hrunið til gi'Unna. Slíkur sjónarsviptir er að honum. Hann var ímynd hins nyrzta útvarðar, er stendur teinréttur af sér hafrót °g storma, kulda og nepju hins nyrzta hjara. Slíkur var aianndómur hans, karlmennska og þor. Sigurður Kristjánsson. 26

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.