Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 36

Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 36
Séra Eiríkur Helgason, prófastur í Bjarnanesi. Fœddur 16. febrúar 1892. Dáinn 1. ágúst 1954. „Þá sagði Drottinn við Kain: Hvar er Abel bróðir þinn? En hann mælti: Það veit ég ekki, — á ég að gæta bróður míns?“ (I. Mós. J{, 9). Allir kannast við söguna, þar sem þessi orð voru sögð, söguna af samskiptum þeirra bræðra, Kains og Abels, — og hve sorgleg endalok þeirra urðu. Ég gæti trúað, að ein- hverjum finnist það næsta und- arlegt, að rifja hér upp þessa ævafornu sorgarsögu. En það er gert að ráðnum huga. Þó að spurningunni: „Hvar er Abel bróðir þinn?“ hafi verið varpað fram þegar við vöggu mann- kynsins, þá stendur hún í fullu gildi enn í dag. Bróðirinn, — hvers virði er hann? Á ég að gæta bróður míns? Já, spurningin forna hljómar í huga mínum, þegar ég minn- ist míns látna tengdaföður og vinar, séra Eiríks Helga- sonar, prófasts í Bjarnanesi. Ég sé hann í anda, þar sem hann stendur ungur og ör, — æskuþrótturinn krefst þess, að hafizt sé handa. — Flestir eða allir ungir menn eiga einhverja köllun, — Guð hefir einhvern tíma kallað til okkar allra. En það eru ekki allir, sem bera gæfu til að nema hið heilaga kall Séra EiríJcur Helgason.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.