Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 48

Kirkjuritið - 01.10.1954, Side 48
406 KIRKJURITIÐ hina útlendu gesti og hinn stóra skara áheyrenda velkomna og þakkað fyrir vinsamlegar viðtökur, sagði hann, að það væri honum mikil gleði að hafa getað varið þessum degi í þjónustu Biblíufélagsins. „Þetta félag,“ sagði hann, „hefir aðeins haft eitt takmark: að útbreiða Biblíuna, og hefir unnið að því af öllum mætti í 150 ár.“ Stuttar ræður voru haldnar af fulltrúum frá Ameríku, Kóreu, Frakklandi, Pakistan og Uganda. Þess á milli söng söngflokkur „Westminster Choral Society" alveg að- dáanlega. Miklar gjafir voru gefnar. Særstu afmælisgjafirnar voru frá Ameríska Biblíufélaginu, sem gaf 100 þúsund dollara, Kanada, 75 þúsund pund, og Suður-Afríku, 35 þúsund pund. Afmælisfundinum lauk ekki fyrr en 16. júní. Þá var haldinn mikill kvennafundur í Central Hall, Westminster, undir forsæti erkibiskupsfrúarinnar af Kantaraborg. Fulltrúar frá ýmsum löndum voru boðnir á þennan fund og var ég á meðal þeirra. Hinn nafnkenndi fríkirkjuprestur, frú Elsie Camberlain, hóf fundinn með bæn. Erkibiskupsfrúin bauð þátttakendur fund- arins velkomna. Kafli úr Biblíunni var lesinn, og síðan hélt ungfrú Rosmary Guillibaud mjög fróðlega ræðu, bæði um sam- vinnu Biblíufélagsins og Kristniboðsfélaganna og um hina miklu erfiðleika, sem þýðendur Biblíunnar á óþroskuð tungumál eiga við að stríða. Hún talaði af eigin reynslu, því að hún hefir þýtt Nýja Testamentið á Rundi, sem er eitt af hinum óþroskuðu málum Afríku. — Síðan talaði dr. Hilda Lazarus frá Indlandi. Hún var í mörg ár forstöðukona læknaskólans í Vellore á Suður-Indlandi og er talin ein af hinum merkilegustu kristnu konum þar í landi. — Þótt farið sé að bóla á mótstöðu á móti kristinni trú á Indlandi, sagði hún, að dyrnar væru þó stöðugt opnar og það riði á að útbreiða Biblíuna, — á meðan hægt væri. Á Indlandi eru 250 tungumál. Þýðingar eru til af pörtum af Biblíunni á 180 málum, og öll Biblían á 30 málum. Því miður eru enn þá 40 tungumálaflokkar á Indlandi, sem ekki eiga neitt þýtt á sitt mál af Biblíunni, og ríður mjög á því, sagði hún, að unnið verði af kappi að því að þýða Biblíuna á þessi mál. —■ Dr. Lazarus sagði enn fremur, að áhugi kristinna indverskra kvenna á útbreiðslu Biblíunnar færi stöðugt vaxandi. í ýmsum borgum, bæjum og þorpum hefðu myndazt kvenfélög, sem ynnu að útbreiðslu Biblíunnar — og væru þessi félög orðin 207.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.