Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 54

Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 54
412 KIRKJURITIÐ sem gert er ráð íyrir að 29 kórar njóti kennslu í 33 vikur, sam- kvæmt umsóknum, en væntanlega yrðu þeir fleiri, og væri sam- bandið við því búið fjárhagslega. — Auk þess hefðu 7 kórar sótt um kennslu í 8 vikur á árinu 1955. Lauk formaður máli sínu með þakklæti til allra samstarfs- manna og bað menn vera bjartsýna og örva og áminna hver annan um að efla kirkjusönginn sem mest; því fylgdi mikil blessun fyrir allan landslýð. Lagðir voru fram reikningar sambandsins fyrir árið 1953 og lesnir upp af gjaldkera, séra Jóni Þorvarðssyni. Höfðu tilkjörn- ir endurskoðendur áður um f jallað, og voru reikningarnir sam- þykktir án umræðu eða athugasemda. Þá var gert fundarhlé, og þágu menn veitingar af hendi söng- málastjóra og húsfreyju hans. Að fundarhléi loknu var aftur tekið til fundarstarfa, og lagði gjaldkeri fram drög að fjárhagsáætlun fyrir árið 1954, miðað við starfskostnað frá síðustu áramótum til fundardags og starfs- áætlun formanns til næstu áramóta. — Umræður urðu nokkr- ar, en síðan var f járhagsáætlunin samþykkt í því formi, sem að framan greinir. Þá var rætt um söngkennslu og voru formanni og sambandinu færðar þakkir fyrir framgöngu og fyrirgreiðslu í þeim efnum. Stjórn sambandsins svo og varastjórn og endurskoðendur voru endurkosnir með lófataki. Stjórnina skipa: Sigurður Birkis, söngmálastjóri, formaður. Séra Jón Þorvarðarson, gjaldkeri. Páll Halldórsson, organleikari, ritari. Jónas Tómasson, tónskáld, úr Vestfirðingafjórðungi. Eyþór Stefánsson, tónskáld, úr Norðlendingafjórðungi. Jón Vigfússon, organleikari, úr Austfirðingafjórðungi. Anna Eiríksdóttir, organleikari, úr Sunnlendingafjórðungi. Varastjórn: Páll ísólfsson, tónskáld, varaformaður. Sigurður ísólfsson, organleikari, varagjaldkeri. Kristinn Ingvarsson, organleikari, vararitari. Séra Sigurður Kristjánsson, úr Vestfirðingafjórðungi. Jakob Tryggvason, organleikari, úr Norðlendingafjórðungi. Séra Jakob Einarsson, prófastur, úr Austfirðingafjórðungi.

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.