Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 55

Kirkjuritið - 01.10.1954, Page 55
KIRKJUKÓRASAMBAND ISLANDS 413 Páll Kr. Pálsson, organleikari, úr Sunnlendingafjórðungi. Endurskoðendur: Frú Sigríður Briem. Baldur Pálmason, fltr. V araendurskoðendur: Páll Guðjónsson, byggingarm. Hálfdan Helgason, verzlm. Síðast á dagskrá voru önnur mál; bar þá margt á góma, og tóku ýmsir til máls. — Mikill áhugi og eining ríkti á fundinum. Að umræðum loknum þakkaði fundarstjóri, séra Jakob Ein- arsson, prófastur, — en hann hafði tekið við fundarstjórn af séra Friðriki A. Friðrikssyni, prófasti, — fundarmönnum og óskaði þeim fararheilla. Þá kvaddi hann og söngmálastjóra, for- mann sambandsins, og óskaði þess fyrir hönd allra, er sönglífi unna og fyrir kirkjusönginn vinna, að sambandið megi njóta starfskrafta hans og áhuga sem lengst og bezt. Söngmálastjóri þakkaði fagrar óskir sér til handa og bað fundarmenn að syngja að skilnaði: „Ó, syng þínum drottni, Guðs safnaðarhjörð“, og var svo gjört, er fundi hafði verið slitið. Þakkarskeyti barst frá biskupi í fundarlok. * Söngmót hélt Kirkjukórasamband Dalaprófastsdæmis sunnudaginn 9. tuaí siðastliðinn að Sælingsdalslaug. Fjórir kirkjukórar sungu á mótinu, ýmist sjálfstætt eða sameiginlega, og að lokum allir saman, og var sá kór um 80 hianns. Söngstjóri var séra Pétur T. Oddsson prófastur, er flutti emnig ávarp í byrjun mótsins og stjórnaði svo öllum lögunum a hljómleikunum. Kjartan Jóhannesson kennari Kirkjukórasambands Islands hafði-æft alla kórana fyrir þetta mót, og lék undir á orgelið á söngmótinu. í lok hljómleikanna flutti Sigurður Bii’kis söngmálastjóri erindi, en Geir Sigurðsson, bóndi að Skerðingsstöðum, þakkaði songmálastjóra ræðuna og fyrir störfin fyrr og nú í þagu

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.