Kirkjuritið - 01.10.1964, Síða 5
KIRKJURITIÐ
339
að þeir eru allir eitt í honum. Vér höfum í bænum vorum og
sálmum, þegar vér höfum beðið fyrir voru litla landi, einnig
minnzt þess, að faðir vor er faðir allra þjóða og ljósið í stríði
allra lýða. Þannig höfum vér liaft útsýn langt út yfir mæri
vors fjarlæga og einangraða lands og það er ein af mörgum
dýrmætum gjöfum kirkjunnar til þeirrar þjóðar, sem byggt
hefur þessa eyju, að hún liefur skapað þau tengsl við umheim-
tnn, sem sífellt hafa fært menningu vorri og þjóðaranda nýja
næringu.
En það sem nú gerist er alger nýjung í allri vorri sögu, að
menn úr öllum álfum heims, sem eru í forustu í málum lút-
hersku kirkjunnar liver á sínum stað og sameiginlega í fylk-
tngarbrjósti lútherdómsins í veröldinni, koma hingað og ger-
ast gestir kirkju vorrar um leið og þeir koma saman til mikil-
vægs fundar í þágu hinnar alþjóðl. lúth. kirkju. Ég vil segja það
hér, eins og ég hef sagt það áður bréflega við suma yðar, að þetta
tillit af hálfu framkvæmdanefndar lútherská lieimssambands-
nis er mikilsvirt og metið og vér skiljum það vel, að það er
vor vegna gjört fremur en yðar vegna. Það er einlæg von mín
og bæn, að vera yðar hér megi verða yður til gleði á allan liátt
eins og ég er sannfærður um, að hún muni verða oss til upp-
orvunar og styrktar. Vér höfum áður orðið þess varir, að vér,
þessi smáa grein á meiði lútherskrar kristni, njótum bróðurlegs
tillits og skilnings. Þannig gerði þáverandi forseti lútherska
neimssambandsins, dr. Franklin Clark Fry, oss þann mikla
heiður að vera viðstaddur vígslu mína fyrir 5 árum. Sú heim-
sókn er geymd og mun verða geymd í þakklátu minni. Þá
sagði hann fagurlega og réttilega, að liann væri hér við það
tækifæri sem sameiginleg tunga, talandi raust, alls þess kórs
kristinna meðbræðra vorra um víða veröld, sem bæði Guð að
blessa oss.
Mér er einnig ljúft að geta þess hér, að nýlega hefur ein af
starfsnefndum Lútherska Heimssambandsins, að frumkvæði og
fyrir örlæti sænsku kirkjunnar, rétt oss mjög hlýja hjálpar-
könd í stóru verki, sem vér höfum með liöndum, þ. e. að reisa
kirkju til minningar um þann mann, sem hefur þýtt meira
fvrir lifandi lútherskt trúarlíf á þessu landi en nokkur einn
tnaður annar, 17. aldar skáldið Hallgrím Pétursson. Mér er