Kirkjuritið - 01.10.1964, Blaðsíða 49
KIRKJURITIÐ
383
legu leyti snúizt um verkefnin í Skálholti. Á aðalfundi sínum
gerði ráðið m. a. ályktun um, að endurskoðun á lielgisiðabók
íslenzku kirkjunnar væri knýjandi nauðsyn og var forseta
falið að gera ráðstafanir til þess að hrinda því rnáli af stað.
Sálmabókarnefnd hefur Iialdið marga fundi og þegar unnið
mikið verk, þótt miklu meira af verki hennar sé eftir. Enn
hafa tiltölulega fáir prestar látið í té umbeðnar álitsgjörðir
og væri það nefndinni mikil stoð, að hún fengi í hendur álit
þeirra sem flestra og tillögur til breytinga.
Starfsemi Biblíufélagsins og hin miklu verkefni þess mun
séra Óskar J. Þorláksson, féhirðir félagsins, kynna með sér-
stöku erindi hér á prestastefnunni síðar, svo sem dagskráin
segir til um.
Merkan viðburð tel ég það, að á Hólaliátíð, sem haldin var
16- þ. m. var stofnað Hólafélag og er tilgangur þess að vinna
að kirkjulegri endurreisn á Hólum. Þetta er fagnaðarefni og
hið ég þess af alhug, að félagið megi verða öflug skjaldborg
um helgan Hólastað og göfugum hugsjónum til vakningar og
hrautargengis.
A alþingi lágu fyrir og voru afgreidd tvö mál, sem kirkj-
una varða. Annað var breyting á lögum uni sóknargjöld, þar
sem kirkjumálaráðherra er heimilað, að fengnum tillögum
sóknarnefnda, að leyfa hækkun sóknargjalda allt að 250 kr.
Hitt var þingsályktunartillaga, sem lá fyrir þinginu í fyrra en
uú var flutt af fleiri þingmönnum, þar sem skorað er á ríkis-
stjórnina að leitast fyrir um tekjustofna lianda þjóðkirkjunni.
í greinargerð fyrir þessari tillögu var rækilega bent á fjár-
hagserfiðleika safnaða, sem þurfa að ráðast í kostnaðarsamar
framkvæmdir, svo sem kirkjubyggingar, og sýnt fram á sið-
ferðislega skyldu ríkisvaldsins til þess að reyna að greiða itr
þessum vanda betxir en orðið er.
Þótt þessi tillaga liafi verið samþykkt, sem vissulega er
góðra þakka vert, er sú þrautin eftir að finna leiðir til öflunar
ú nauðsynlegum fjármunum til sérstakra þarfa safnaðanna og
hirkjunnar í heild. Hefur kirkjumálaráðuneytið óskað eftir
umsögn minni og tillögum um þetta og mun ég leggja það
fyrir kirkjuþing það, sem koma á saman í haust.