Kirkjuritið - 01.10.1964, Blaðsíða 16
350
KIItKJURITIÐ
ICirkja vor kallast Evangelisk-lútlierska kirkjan í Tanganíku.
Meðlimir hennar eru um 400.000. Áður fyrri voru hér sjö lút-
herskar kirkjudeildir, en þær sameinuðust í eina árið 1963.
Ibúar Tanganíku eru 10 milljónir. Þar af eru 2 milljónir
kristnar, þar með taldir rómversk-kaþólskir. Hinir eru annað
livort heiðingjar eða Múliameðstrúar. Af þessu sést að fagn-
aðarboðskapurinn á liingað mikið erindi. Fagnaðarerindinu
standa margar dyr opnar, en oss skortir bæði fé og fólk (presta)
til að bæta úr þörfunum. Þá veldur það miklum vanda liversu
margir, einkum af æskulýðnum, leita úr sveitahéruðunum til
borganna og falla þar í margs konar freistni. Þetta krefst fleiri
presta og kirkna í borgunum.
Guði séu þakkir fyrir það, hvað kirkjan er í örum vexti.
Sautján þúsund fullorðnir vorn skírðir þrjú síðustu árin. Tala
skírðra barna var jafnvel enn hærri.
Dvöl mín á íslandi var mér á margan hátt til gleði.
Guð blessi yður öll!
Dr. Jaak Taul,
forseti Lúlherska kirknasambandsins á Bretlandseyjum.
★
Ég sendi hinni alúðlegu íslenzku þjóð og kirkju þakkir mínar
með kveðju postulans í 2. Ivor. 13, 13: Náðin Drottins Jesú
Krists og kærleiki Guðs og samfélag heilags anda sé með yður
öllum. Hér ræðir um: náð, kærleika, samfélag. Til þess að gjöra
oss nútíðarmönnum þessi orð skiljanleg, liygg ég vel til fallið
að hugfesta grandgæfilega livað er andstætt þessum blessunar-
bænum postulans.
Vér biðjum um aukið samfélag, enda þörfnumst vér þess
öll, og vér fundum til náins samfélags við yður öll í Reykjavík.
En vér vitum liins vegar að andstæða samfélagsins er óeining-
in. Óeiningin er mikill bölvaldur í veröldinni á vorum tímuin,
og allir trúaðir menn skyldu hiðja þess, að Heilagur andi hjálpi
oss að sigrast á henni. Einingin er dýr gjöf Heilags anda.