Kirkjuritið - 01.10.1964, Page 39
KIHKJUIUTIÐ
373
f jarSarprófastsdæmi var settur frá sama tíma séra Benjamín
Kristjánsson, Laugalandi.
Dómprófastur séra Jón Auðuns liafði leyfi frá störfum helm-
mg þessa árs frá 1. janúar að telja. Yar séra Hjalti Guðmunds-
son seltur til þjónustu við Dómkirkjuna á meðan, en séra
Oskar J. Þorláksson, dómkirkjuprestur, settur til þess að gegna
prófastsstörfum.
Séra Friðrik A. Friðriksson, fyrrverandi prófastur, liefur
verið settur til þess að þjóna Iíálsi í Fnjóskadal frá 1. maí þ. á.
að telja.
Séra Björn O. Björnsson, sem þjónað Iiafði Seyðisfirði í or-
lofi séra Erlends prófasts Sigmundssonar frá 15. maí 1963,
hefur verið settur til þess að þjóna Kirkjubæ í Hróarstungu
frá 1. júní þ. á.
Ég fagna því að þessir góðu bræður liafa þannig aftur tekið
starf sem })jónandi prestar.
1 ársbyrjun 1962 fékkst samþykki kirkjumálaráðherra fyrir
því, að prestum skyldi fjölgað í Reykjavíkurprófastsdæmi í
saniræmi við ákvæði laga um liámark mannfjölda á livern
þjónandi prest í höfuðstaðnum. Óskaði hann eftir því, að til-
lögur um prestakallaskipun bærust það fljótt, að unnt yrði að
skipa í hin nýju embætti frá næstu áramótum, þ. e. 1962—’63.
1 illögur safnaðarráðs Reykjavíkurprófastsdæmis voru liins
vegar ekki tilbúnar fyrr en 15. febrúar 1963. Álitsgerð mín um
Jnálið var afgreidd til ráðuneytisins 22. júní. Niðurstaða þeirra
tillagna var sú, að bætt skyldi við öðrum presti í þrjú presta-
köll borgarinnar, Nes-, Háteigs-og Langlioltsprestaköll, en 6
ný einmenningsprestaköll skyldu stofnuð. Þó skyldu þrjú
þeirra ekki auglýst að sinni, þar eð mannfjöldi í þeim var ekki
enn orðinn nægilega mikill. En þessi þrjú prestaköll, Háa-
leitis-, Fossvogs- og Seltjarnarprestaköll, eru þegar lögfest.
Hin þrjú, sem auglýst voru ásamt fyrrgreindum embættum í
tvímenningsprestaköllum, eru Ás-, Bústaða- og Grensáspresta-
köll. Kosning fór fram í þessum prestaköllum 1. desember og
voru embættin veitt frá 1. janúar þ. á. Skipaðir voru: 1 Ás-
prestakalli séra Grímur Grímsson, sóknarprestur í Sauðlauks-