Kirkjuritið - 01.10.1964, Page 77
Framlag til Skálholts
Á Skálholtsliátíðinni, sem haldin var um síðustu lielgi vakti
símskeyti frá sóknarnefndum Holtsprestakalls í Önundarfirði,
sérslakan fögnuð og hrifningu liátíðargesta. Skeylið var svo-
hljóðandi:
„Skálholtshátíðin, Skálholti.
Hreppsnefndirnar í Holtsprestakalli í Önundarfirði
hafa ákveðið að heiðra minningu Brynjólfs biskups
Sveinssonar með því að gefa til Skálholts 25 kr. á livern
gjaldanda í hreppnum og hefur Flatevrarhreppur ákveð-
ið það næstu fimm ár. Hreppsnefndirnar vænta þess, að
önnur sveitarfélög veiti Skálholti svipaðan stuðning.
Sóknarnefnd Holtsprestakalls“.
Ekki efa ég það, að þeim ágætu mönnum, sem að eigin
frumkvæði hafa sýnt Skálliolti þvílíkt drengskaparbragð, muni
verða að þeirri trú sinni, að aðrir fylgi fordæmi þeirra. Hef ég
þegar fengið þá von staðfesta á eftirminnilegan liátt, er Snorri
^Sigfússon, fyrrv. námsstjóri, sendi mér bréf það, sem hér fer á
eftir:
„Framlag til Skálholls.
Endurreisn Skálliolts á að verða áhugamál og metnað-
armál allrar þjóðarinnar. Þar á að rísa andleg aflstöð
landi og lýð til farsældar í framtíð.
En slík uppbygging er mikið átak og þurfa því sem
allra flestir að leggja þar liönd á plóg.