Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 48

Kirkjuritið - 01.04.1972, Page 48
Einu sinni gerði ég á hluta vinar míns. Það olli mér óbœrilegs hugar- angurs. Loksins varð ég að segja hon- um frá þessu afdráttarlaust, og bað hann fyrirgefningar. Var þá eins og létt vœri af mér þungri byrði. Enda hafði ég losnað við þessa yfirtroðslu; þessi synd var skyndilega horfin úr hjartanu, við minntumst aldrei á hana framar. — Heldurðu nú, að ég hafi átt hœgt með að fara af stað rétt á eftir og fremja sama ranglœtið? Þa er óhugsanlegt. Fyrirgefningin afma'r syndina, og skapar hjá okkur viðbjo á öllu ranglœti." Svo kvaddi ég vin minn, ökumann inn. En til þess að honum gœfist kost ur á að kynnast kristniboðanum 1 Chenping, bað ég hann fyrir nafn spjald og kveðju. Og nú kvað honn vera þarna á námskeiði. Um helgisiði Kristur sjálfur stofnaði til nýrra helgisiða með stofnun sakramentanna. Þau verða ekki höfð um hönd án forms og siða. Hann setti kvöld- máltíðarsakramentið inn í formfasta helgimáltíð. Engar heimildir greina frá því, hve miklu hann kann að hafa breytt í siðum þeirrar máltíðar. Aðeins er vitað, að hann bœtti inn í þá orðunum: ,,þetta er minn líkami", „þetta er blóð mitt" og gerið þetta í mína minn- ingu". í Nýjatestamentinu eru engin önnur bein fyrirmœli um helgi- siði. Margir hafa viljað taka þögn Nýjatestamentisins um þetta sem sönnun þeirrar skoðunar sinnar, að engir helgisiðir heyri kristninni til, eða þá, að einhver einfaldleiki hafi verið við þetta, sem virðist þá vera einfaldari en svo, að frá honum verði sagt. Þessi óskhyggja fœr engan veginn staðizt. Eins og fyrr var á bent, er ógerlegt að framkvœma athöfn án siða og forms. Auk þess má ekki gleyma þvi, að máltíð sú, sem sakramentið var upphaflega fellt inn í, var síður en svo einföld, þvert á móti, við hana voru tengdir siðir, sem nu myndu teljast margbrotnir. Ur grein sr. Sigurðar Pálssonar. Sjá bls. 79. 46

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.