Jörð - 01.04.1941, Blaðsíða 98
eftir bók, þö þeir fengju þær allar jafnliarðan í hausinn
aftur. Einn vissi ég um, sem sendi forlaginu þrjátíu bæk-
ur á tuttugu og fimm árum, og var engin þcirra prent-
bæf! Þá má segja að mestur bluti þess þriðjungs, sem
el'tir er, iiafi verið handrit ungra skáldefna, sem lýstu
enn óræðum gáfum, en bækurnar sjálfar tíðast óprent-
b.æfar. Þessi handrit voru lesin af mestu gaumgæfni, af
tveimur til þremur bókmenntaráðunautum forlagsins, en
skáldefninu síðan send gagnrýni þeirra, til fræðslu og
leiðbeiningar, — bvort sem bókin var prentuð eða ekki.
— Starfsemi þessi, sem er ómetanleg bjálp fyrir unga
höfunda, og dálítill vísir til skóla í þessari listgrein, kost-
aði forlagið tugi þúsunda króna á ári hverju. En þetta
var talin sjálfsögð menningarskylda, þó lijá einkafyrir-
tæki væri. — Hversu þröngt „nálaraugað“ er hjá hinum
stóru forlögum, má ráðá af þvi, að af öllum þessum sæg
komust aldrei í prentsmiðjuna nema þetta tveir til þrír
nýir menn á ári, þegar bezt lét, oft ekki nema einn, stund-
um enginn!
Það kom örsjaldan fyrir að fyrsta bók höfundar væri
prentuð. Eftir að þeir höfðu fengið endursend eitt lil þrjú
handrit, kom stundum allt í einu bók, sem reyndist prent-
bæf, og var ofl eftirtektarverð. Hún var svo gefin út, og
hlaut í sumum tilfellum það góða dóma, að athygli les-
enda var vakin. Þá var binn nýi höfundur kominn inn
á „Parnassið“ og liafi vakið cftirvæntingu. — En bók-
menntaráðunautarnir kviðu allajafna fyrir ])ví að lesa
næstu l)ók hans; ])eir vissu af sárri reynslu, að hún myndi
naumast verða jafngóð, og sizt hetri en sú fyrsta. Oftast
böfðu þeir rélt fyrir sér, en einstaka undantekningum
man ég þó eftir. Býsna oft var næsta bók svo klén, að holl-
ast hefði höfundi verið að fá hana endursenda. En þeirri
reglu var tíðast fylgt, að láta hann laga hana, sem frek-
ast var unnt, samkvæmt bendingum bókmenntaráðunaut-
anna, og gefa hana síðan út. Það var vitað sem var, að
blöðin myndu verða væg í dómum um byrjanda, er sýnt
bafði ótviræða skáldgáfu í fyrstu bók sinni. Og þeim höf-
96 jörð