Jörð - 01.04.1941, Blaðsíða 122
tenórsöngvaranum! Slíkt ber ekki vott um þroskaðan
smekk.
Mín reynsla er sú, að þeir, sem mest vit liafa á tón-
list og beztan smekkinn, liafi um leið mestan skilning á
gildi alþýðusöngs.
Safnaðarsöngur og alþýðusöngur getur verið fagur, sé
þátttakan almenn. Þetta skildi Lúther vel. Þess vegna
gerðist hann brautryðjandi safnaðarsöngsins innan kirkj-
unnar, og má teljast höfundur hans. Hann orkti t. d.
sálma við fögur þjóðlög, sem allir kunnu, svo að menn
‘gætu tekið þátt í söngnum við guðsþjónustur.
Á síðari tímum hefir verið lögð mikil áherzla á eflingu
alþýðusöngs í öllum menningarlöndum álfunnar. Og út-
varpsstöðvar víðsvegar um lönd hafa sína ákveðnu söng-
tíma fyrir almenning. Hér liefir Ríkisútvarpið einnig gef-
ið mönnum kost á að „taka undir“, og liefir þeirri ný-
hreytni verið mjög vel tekið af hlustendum um land allt,
og virðist þátttakan mjög mikil.
Hið sameinandi afl söngsins er mikið. Þeklcja menn
nokkuð, sem sameinað geti betur hugi manna um velferð
fósturjarðarinnar, en söngur beztu ættjarðarljóða?
Takið öll höndum saman um að efla og glæða alþýðu-
söng á fslandi! Syngið sjálf, — ein og með öðrum.
SPÆJARINN TOSCANINI.
Eins og mörgum er kunnugt, er T o s c a n i n i nafn frægasta
hljómsVeitarstjóra i heimi. Hann segir frá eftirfarandi smáatviki
lir reynslu sinni: „Kona nokkur skrifaði mér, að hún hefði ný-
lega fætt andvana barn, og missti við það löngunina til að lifa.
Þá var það, að maður liennar lét hana hlusta á útvarpshljómleik,
sem ég stóð fyrir. Þetta hafði þau álirif á hana, að hún fékk lífs-
löngun sína að nýju; svo mikið fannst henni til um þá fegurð, sem
lnin fékk þannig vitneskju um, að væri til. Hún lét ekki nafns
sins getið, því hún ætlaðist ekki til svars; vildi að eins láta mig vita.
Bréf þetta lét mig ekki i friði; ég varð að koma þakklæti mínu
á framfæri. Lét ég skrifara minn sima til allra spítala í New York,
og þannig höfðum við upp á henni, þó að við hefðum ekkert við
að styðjast nema dagsetninguna. Sama dag sendi ég henni mynd
af mér með áletruninni: Frá Arturo Toscanini, spæjara.
(Úr „Reader’s Digest“, Ágúst f. á.).
120 jönn