Syrpa - 01.07.1915, Síða 22

Syrpa - 01.07.1915, Síða 22
20 SYRPA, I. HEFTI 1915 En ekkert iiugboð hafði eg um nein nánari atvik að því nema að eg þóttist vita að cg yrði eigi fyrir því sjálfur. Eg verð að álíta, að hugboð sem þessi, geti eigi átt frumrót sína að rekja til iriannsins sjálfs. Hugur hans og sál verða að fá það frá ver- um utan að. Miklar líkuv eru til, að þœr geti vitað margt fyrir, og þess meira, sem þær standa á liærra stigi. Iiugsun og sái geta að sönnu ráðið í margt eftir líkum. En að þær sjái eða fái frá sjálfum sér vitn- eskju um það fyrirfram, sem engin líkindi eru til, er ástæðulaust að hugsa að geti átt sér stað. Dauða Jóns tók eg mér nærri. Eg á ætíð erfitt með að sætta mig við, þegar ungir og efnilegir menn eru snöggiega burtkaliaðir. Hann var mér auk þess mjög geðfeldur. En l>að sem mostu skifti, var þó það, að eg ásakaði mig fyrir dauða iians. Eg var nær sannfærður um það, að iiefði eg fárið í tíma út á Blönduós, myndi dauða Jóns eigi hafa borið að í það sinni. Mér var því atburð- ur þessi mjög minnisstæður. En setjum nú svo, að eg iiefði getað komið í veg fyrir siysið, þá liefði eg skoðað hugboðið sem aðra mark- ieysu. Sendiför að Sveinsstöðum. Það ber að iikindum eigi ailsjald- an við, að hugboð bjargi mönnum frá oráðum bana. En þegar dauð- inn verður umflúinn, vita menn s.ialdnast anm.ð, en að hugboðm hafi verið maikleysa. Eg vil hér nefna eitt dæmi af mörgum. Það mun liafa verið fjórum árum síðar en Jón druknaði, að eg sendi einu sinni j-íðandi mann að Sveins- stöðum. Mlkið liörsl var á jörðu og varasamt að ríða hart. Degar maðurinn var um það leyti að snúa heimleiðis, greip mig viðlíka sterkt lmgboð cins og daginn sem Jón druknaði. En hugboðið var um það, að sendimaður minn inundi rfða hart og ógætilega á vissum stað eftir Ásnum, en svo heitir hluti af leiðinni. Dar þóttist eg sjá glögg- lega í huganum hestinn detta, manninn kastast fram af honum og liöggva gat á höfuð sér til bana. Einnig fanst mér eg heyra ljóslega í huganum þessa ákveðna skipun: Komdu í veg fyrir þetta. Mér var enn svo minnisstæð druknun Jóns og tómlæti initt þá, að eg tók þegar hest og reið af stað. Eg mætti manninum þegar liann var nær því kominn að Ásnum. Sagði eg hon- um, að eg hefði brugðið mér þetta að gamni mínu. Eórum við að spjalla ýmislegt saman og riðum í hægðum okkar. Stakk eg svo upp á því,við hann, að við gengum um stund, af því að svo mikil liörsl væri á næsta kafla, en það var þar, sem mér þótti slysið vilja til. Ekkert bar við, en þá er spurning- in: Var nokkuð að marka hug- boðið? Því getur enginn svarað á því stigi, er vér stöndum nú. Ilug- boðin eru skoðuð sem heimska, ef komið verður í veg fyrir að þau rætist. Eg get og eigi annað álitið, að hugboð liafi mörgum að bana orðið. Annað hvort af því, að hafa verið skakt skilin cða þau hafi verið fram- leidd til að bana manninum. En við alt þetta virðist mér koma fram afarþungráðin gáta. Ilvers vegna var liugboðið um druknun Jóns svo

x

Syrpa

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.