Syrpa - 01.07.1915, Side 50
48
SYRPA, I. HEFTI 1915
eins lengí í loftinu og loftskipin né
boriö neitt þvílíkan þunga og þau.
Frakkland er bezl útbúiö meö loft-
för, haföi hátt á áttunda hundraö í
byrjun ófriöarins. Þýzkaland og
Rússland koma næst. Allmörg
loftför hafa veriö eyöilögð í þessu
stríði,en nýjum hefir verið bætt við,
því mikiö kapp hefir verið lagt á aö
smíða ný, er væru til taks hvenær
sem á þyrfti aö halda.
Það er haft eftir Kitchener lávarði,
sem nú hefir yfirstjó; n yfir her Breta
á hendi, að stríðið byrji fyrir alvöru
í maí í vor. Eftir því ætti þaö sem
komið er að vera að eins undirbún-
ingur undir aöal-stríðið. En sé
þetta í raun og veru haft eftir Kit-
chener sjálfum, þá verður að skilja
það svo,að hann búist við aðánæsta
sumri verði stríðið svo stórkostlegt
að það sem af er verði varla teljandi
í samanburði við það. Fáir nninu
samt geta fengið sig til að trúa því.
Stríðið byrjaði þegar Þjóðverjar
héldu inn í Belgíu og Belgir risu
upp á móti þeim. Bæði í Belgíu og
á Frakklandi, og þá sjálfsagt ekki
síður á PóJlandi hefir stríðið orðið
eins voðalegt og líkindi eru til að
nokkurt stríð geti verið. Vitanlega
eru ekki allar sögur sem blöðin
flytja sannar; en skýrslur stjórnanna
um mannfall eru áreiðanlegar, og
fregnirnar um ásttmdiðí Belgíu,sem
nú koma frá þeim sem eru að reyna
að bæta það, eru eflaust sannar í
öllum aðal-ati iðum. Og þessar
skýrslur og fregnir sýna hvílíkur
voða leikur þetta stríð er. Enginn
getur líklega sagt með nokkurri
vissu. hvað lengi það muni standa
enn, en það virðist engum vafa
bundið, að sambandsþjóðirnar hljóta
að sígra: þær hafa að öllu leyti betri
skilyrði til þess en Þjóðverjar eins
og nú er komið, og höfðu raunar
altaf, nema ef Þjóðverjum hefði tek-
ist að lama Frakkland strax í hyrj-
un ófriðarins, eins og var ásetning-
ur þeirra að gjöra.
HEIMSENDIR.
Eftir Dr. Frank Crane.
Trúarflokkur einn hélt því fram,
að heimurinn mundi líða undir lok
áður en árið 1914 væri á enda.
Eg þekti mann sem gat helt
yfir þig ritningargreinum sem ftttu
að sanna þetta og gert þig orðlaus-
an. Hann seldi alt sem hann gat
við sig losaö og fór til Colorado í
sumar sem leið, til þess að vera þar
sem hátt er og þurt, þegar flóöið
kætni, sem átti að afmá alla til fulls
nema þá útvöldu.
Þetta heimsendisæði brýst jafnan
út öðru hverju. Fyrir fimmtíu ár-
um klæddust ,,Milleritar“ í þúsund
ára, eöa dóms^Iags búning sinn og
söfnuðust saman á fjallstindi nokkr-
um til að bjóöa Gabríel velkominn.
En hann sveik jafnan loforð sitt og
kom aldrei.