Syrpa - 01.07.1915, Side 38

Syrpa - 01.07.1915, Side 38
36 SYRPA, I. HEFTI 1915 hugar enn önnur ástæöa, og liann blóðroönaði út að eyrum. “Eg verð að komast fyrir hvernig í hessu liggur,” hugsaði liann. Svo lagði hann gætilega aftur liurðina, og læddist burtu, án þess nokkuð heyrðist til hans, en kom svo aftur að aðaldyrunum, og gerði mikið hark, svo að Kókúa hóldi, að hann væri l>á fyrst að koma heim. Þegar hann kom inn í stofuna, var flask- an horfin, og Kókúa sat á stól, og hrökk við, þegar hann kom, eins og liún hafði vaknað af svefni. “Eg hefi verið með skemtilegum félögum í dag, og verið að drekka og leika mér,” mælti hann við Kó- kúa, og nú er eg kominn til þess að sækja peninga, og fer svo út aftur.” Kífi var dapur í bragði, og mál- rómurinn alvarlegur, en Kókúá var svo utan við sig af harmi, að hún veitti því enga eftirtekt. “Það er rétt gert af þér, að nota þá peninga sem þú átt, elskan mín,” sagði Kó- kúa slcjálfrödduð. Eg geri ávalt það sem rétt er,” svaraði Kífi, og gekk að kistunni, eins og hann ætlaði niður í hornið, þar sem flaskan hafði verið vön að vera; en hún var þar ekki. Þá var eins og kistan væi'i komin út á rúmsjó, og ylti þar í ölduganginum, og alt húsið væri á iði, og honum sortnaði fyrir augum. Alt var til ónýtis, og ekkert undanfæri. “Það er þá eins og mig grunaöi” hugsaði hann, “hún hefir sjálf keypt flösk- una.” Hann áttaði sig brátt aftur og stóð á fætur, en svitinn rann í straumum niður af enninu. “Kókúa,t’ mælti hann, “eg var vondur við þig í morgun. Nú ætla eg að fara út að drekka með skemti. leg.um lagsbræðrum,” sagði hann og hló við. “Eg myndi liafa meiri á- nægju af því, ef þú fyrirgæfir mér, áður en eg færi.” Kókúa fleygði sér á hné fyrir framan hann, og kysti fætur hans grátandi. “ó, eg hefi þráð það svo mikið, að þú talaðir vingjarnlega til mín,” andvarpaði hún. “Yið skulum aldrei hugsa ilt hvort við annað,” sagði Kífi, og gekk út úr húsinu. Kífi hafði ekki tekið aðra peninga úr kistunni cn þrjár centimur. Hann ætlaði sér alls ekki að fara að drekka aftur. Kona lians hafði fórnað sál sinni til að frelsa hann, og hann hugsaði ekki um annað en að frelsa hana aftur, með því að taka á sig bölv- anina. Hann hitti bátstjórann hjá götuhprninu, þar sem hann liafði skilið við hann. “Konan mín hefir flöskuna, og eg fæ enga peninga eða brennivín í kveld nema þú viljir hjálpa mér til þess að ná í hana aftur,” sagði Ivífi. “Þú munt þó ekki ætla að lialda því fram, að hún sé sönn, sagan um flöskuna þína,” sagði bátstjórinn. “Horfðu framan í mig hérna und- ir kerinu, og vittu livort þér sýnist eg nokkuð spjátrungslegur,” sagði Kífi. “Nci, ónei, þú ert alvarlegur eins og afturganga,” sagði mannskepn- an, og glápti á hann. “Jæja þá,” mælti Kífi, “farðu nú heim til konunnar minnar, og biddu hana að selja þér flöskuna. Hérna eru tvær centímur, og eg er illa svikinn, ef hún lætur þig ekki hafa flöskuna. Ivondu svo hingað með liana, og eg skal kaupa hana af þér aftur fyrir eina eentímu, því að

x

Syrpa

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.