Syrpa - 01.07.1915, Page 46

Syrpa - 01.07.1915, Page 46
44 SYRPA, I. HEFTI 1915 aö því er snerti vörn gegn fallbyssu- skotum, en langtum stærra en þeir. Þetta skip, Inflexible, eins og þaö var nefnt, var yfir 11,000 smálestir og klætt tveggja feta þykkum stál- plötum um miöjuna, en endarnir voru óvarðir. Það hafði tvo mjög sterka skotturna, og voru fallbyss- urnar í þeim, en fáar eða engar ann- arsstaðar á skipinu. Ekki reyndist þessi gerð vel, og hefir benni því verið breytt, svo að nú eru öll stærri herskip varin stafna á milli og hafa fallbyssur bæði í skotturnum og eft- ir skipinu endilöngu. Stærstu skip- in í brezka flotanum (super-Dread- noughts) eru um 25,000 smálestir að stærð og um 620 fet á lengd. Þau eru stálvarin með 12 þumlunga þykkum plötum um mlðjuna, til að hlífa vélunum, og 4 þumlunga þykk- um plötum til endanna. Skotturn- arnir, sem eru tveir, eru varðir með 10 þumlunga þykkum stálplötum. Skip af þessu tagi hafa 22 stórar fallbyssur og nokkrar smærri. Sum- ar af þeim stnærri á þeim allra-nýj- ustu eru ætlaðar til þess að skjóta á flugvélar og aðrar til þess að skjóta á tundurbáta. Þetta eru stærstu og bezt útbúnu herskipin, sem Eng-, lendingar eiga, og hafa þau verið bygð á síðastliðnúm þremur árum. Sum af skipum Þjóðverja eru þó enn þá stærri en útbúnaður mun vera hérumbil sá sami. Næst super- Dreadnoughts koma Dreadnoughts, eru það nokkuð minni skip en með samskonar útbúnaði; þá koma víg- drekar (battleships) og njósnarskip (cruisers). Eru bæði vígdrekar og stærri njósnarskip stálvarin. Onn- ur herskip eru tundurbátabrjótar (destroyers) og tundurbátar (torp- edoe boats). í brezka flotanum voru áður en stríðið byrjaði 728 skip af öllum tegundum; og skipshafn- irnar samtals 151,000 menn. Þjóð- verjar höfðu áður en stríðið byrjaði 316 skip. Stærstu fallbyssur, sem nú eru notaðar á herskipúm eru 15 þuml- unga byssur, það er að segja, þver- mál hlaupsins að innan er 15 þuml- ungar. Eitt skot úr slíkri byssu vegur 1 ,950 pund. Sprengikúla úr 14 þumlunga fallbyssu gengur í gegnum 14 þumlunga þykka stál- plötu á 7 mílna færi. Eilt slíkt skot kostar um 700 dollara. Byssum þessum má miða með mestu ná- kvæmni, og þær smærri eru afar- hraðskeytar. Herskip af Dread- nought flokknum útbúin með stærstu fallbyssum, sem nú eru búnar til, eru að skoðun rnargra, einu herskip- in sem koma að nokkru verulegu gagni nú. ÖIl önnur herskip að tundurbátum fráskildum, eru á eft- ir tímanum. Tundurbátar eru þannig gjörðir, að þeim má hleypa í kaf á svipstundu Þeir geta farið langar leiðir í kafi og sjást þá ekki fyr en þeir eru rétt komnir að skipi því, sem þeir ætla að sökkva. En þó tundurbáturinn sé sjálfur í kafi, veit skipshöfnin á honum vel hvað framundan er. Eins konar kíkir, sem nefndur er peri- skóp, segir til um það. Annarendi hans stendur altaf upp úr sjónum, en hinn endinn er niðri í bátnum og sést í honum alt, sem speglast í efri endanum. Þegar tundurbáturinn nálgast skip niðri í sjónum, sendir hann frá sér tundursendil, sem er sívalningur hér nm bil 18 þumlung- ar í þvermál og 16 fet á Iengd. Sendlinum er skotið með saman- þrýstu lofti og fer hann fremnr hægt,

x

Syrpa

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.