Syrpa - 01.07.1915, Blaðsíða 55

Syrpa - 01.07.1915, Blaðsíða 55
SYRPA, I. HEFTI 1915 53 En þetta var nú samt ekki mikiö hjá því sem á eftir kom. Með stök- ustu stillingu, dró liann upp dýr- indis leöurveski, tók úr því margs- konar spegilfögur áhöld og byrjaöi aö hreinsa og laga til á sér negl- urnar, meö hinni mestu gaumgæfni. Hópur manna þyrptist utan um hann undrandi, meöan hann var að þessu verki sínu. En hann lét sem hann tæki ekki eftir neinu. Loksins höfðum vér náö skotgröfunum og sett okkur á laggirnar. En ,,hans hátign“ braut 5.11ar reglur, á einhvern hátt. Hann gat ekki sofiö án þess að hafa kodda undir höföinu og keypti af þeim næsta fyrir tvo vindlingapakka að mega hvíla höfuöiö á maga hans. En álit vort á honum breyttist fljótt. Eftir að hann hafði lagt að velli 16 Þjóðverja, hvern á fætur öðrum, án þess að missa skots, fyltumst vér aödáunar yfir iist hans og hugrekki. Nokkru seinna yfirgáfum vérskot- grafirnar, því miður ekki þó allir, og var oss skipað að taka þorp eitt sem var fullskipað Bavariu-liði. Til þess að hvetja menn vora, mælti foringi vor: Þér sjáið húsin þarna ! Inn í liverju þeirra eru ágætis rúm, og þau megið þér nota ef vér náum þorpinu á vort vald“. Og þér getið hugsað yður að vér vorum ekki lengi að ráðgast um hvað gera skyldi. Eg var með þeim fyrstu, sem nálguðust þorpið, að minsta kosti hugði ejj svo vera. En mér brá heldur en ekki, er eg kom inn í fyrsta húsið, og sá , ,hans há- tign“ teygja úr sér makindalega í einu púminu. Þar hafði átt hvílu þýzkur yfirforingi. En ,,hans há- tign“ hafði umsvifalaust, kastað honum öfugum út um gluggann. Vér hugðutn að í þorpi þessu mundum vér nú geta notið góðrar og styrkjandi næturhvíldar; en því var ekki að heilsa. Liltu eftir óttuskeið var os§ skip- aö rísa úr rekkju, tneö því aö þýzk hersveit væri þá og þegar komin til þorpsins. Mér gekk vel.aövekja alla mennina, og þeir ruku í fötin tafarlaust, að undanteknum ,,hans hátign“. ,,Farðu á fætur undir eins“, hrópaði eg í bræði. ,,Mér dettur það ekki í hug“, svaraöi hann, ,,Ertu sjóðandi bandvitlaus“ sagði eg. „Stórefiis hersveit þýzk, er rétt í þann veginn að ráða á okk- ur, og við verðum að flýja. ,,Þótt það væri allur her þjóðverja, sem að oss sækti í einu lagi“, sagði hann, ,,þá mundi eg hvergi fara. Eg kynni illa við að láta þýzkarann reka mig upp úr mínu eigin rúmi aö ó- reyndu“. Og hann var eldrauður í framan. Það var í eina skiftið sem eg sá hann skifta skapi. ,,Eg skipa þér“, sagði eg á ný; en hann sneri sér á hina hliðina og steinsolnaði. Vér yfirgáfum þorpið, en námum staðar og bjuggumst til varnar á hæð einni um hálfa mílu burtu. F'oringi vor brá kíkinum fyrir augað: ,,Er það ekki undarlegt“, mælti hann; óvinirnir hafa enn eigi tekið þorpið; heldur eru þeir að eins aö smá-myndast við að skjóta á næstu húsin, og að smá hörfa til baka. Mér varð litið þangað líka. Það var sýnilega einhver sem veitti þýzk- aranum mótspyrnu. Og það var enginn annar en ,,hans hátign“, sem sendi kúlurnar í allar áttir til varnar rúminu sínu. Nokkrum mín- útum síðar fengum vér liðsauka, og þá tókum vér þorpið að fullu og öllu. En getiði hugsað yður í hverju á- standi vér hittum ,,hans hátign?“ Hann lá steinsofandi, með sama væröarblæinn á andlitinu. Eg ýtti við honum. Hann rumskaðist. „Hvernig líður þér?“ spurði eg. „Geturðu útvegað mér kaffisopa?“ sagði hann. Meira sagði hann ekki þann daginn. Ilann er sá værukærasti Breti, sem eg hefi þekt. Hann er enn á orustuvellinum og hefir unnið hvert þrekvirkið á fætur öðru,,.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Syrpa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Syrpa
https://timarit.is/publication/499

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.