Skátafélagið Væringjar 25 ára - 01.06.1938, Blaðsíða 21
19
andlégum og líkamlegum iþróttum. Andlégu íþróttirnar,
sem þeir eiga að temja sér, eru ]iær, að læra hlýðni, sann-
sögli, gott orðbragð, drengskap og kurteisi i framgöngu,
sjálfsaga og sjálfsafneitun, trúmennsku i starfi sínu og
iðni í námi sínu. Líkamlegu íþróttirnar eru ýmsar, t. d.
skotfimi, skátaæfingar, leikfimi, sund og glimur o. s. frv.
eftir því, sem þeir eldast og tæki eru til.
Karlmennska og hreysti í orði og verki, andleg og lík-
amleg, á að vera einkenni þeirra, og nieð öllu þessu eiga
þeir að verða kristnir drengir, sem með fullri vitund og
vilja eiga að læra öllu fremur, að elska Guð og þjóna
konungi sínum, Jesú Kristi. Litirnir á einkennisbúningi
þeirra minna þá stöðugt á þetta. Kyrtillinn, hvítur og
hlár, minnir þá á fósturjörðina, að þeir séu Islendingar
og vilji verða Islandi góðir synir. Skikkjan, rauð og livít,
minnir á sakleysi og lcærleika, og á það, að þeir eiga að
verða stríðsmenn Krists og berjast vasklega á móti soll-
inum og öllum freistingum. Húfan, rauð og hvil og blá,
minnir á Kristilegt félag ungra manna (K. F. U. M.), að
verða þvi góðir liðsmenn og efla það og ástunda allar
hugsjónir félagsins“.
Greinin er nokkuð lengri, en þetta mun nægja fyili-
lega til þess, að skýra hinn göfuga tilgang slofnandans,
séra Friðriks Friðrikssonar. Það er ekki einkennilegt, að
félagið mjög snemma breyttist i skátafélag, þegar borin
er saman grein séra Friðriks og skátalög Baden-Po’wells,
þar má sjá sömu hugsjónirnar og sama tilganginn með
starfinu. Séra Friðriks naut ekki lengi við í Væringja-
félaginu, því hann sigldi til Ameríku þegar á fyrsta
starfsári félagsins. Nú varð að samkomulagi milli séra
Friðriks og A. V. Tuliniusar, hins nýlátna Skátahöfð-
ingja Islands, að hann læki að sér kennslu í félaginu.
Eftir að A. V. Tulinius tók við stjórn félagsins, var
starfsháttum að mörgu breytt, meðal annars var félagið
gert að skátafélagi, og mun það mest bafa verið fyrir
forgöngu Tuliniusar og Ársæls Gunnarssonar. Var þá
2*