Skátafélagið Væringjar 25 ára - 01.06.1938, Blaðsíða 25
23
Guðmundsson var foringi í nokkur ár. Hann nam lækn-
isfræði og kenndi Væringjum „Hjálp i viðlögum“ um
alllangt skeið. Hann vann og við blaðið .,Liljan“ með
Arsæli og vann margt annað fyrir félagið. Pá 11 Sigurðs-
ons var flokksforingi i rúm tvö ár, liætti þá að meslu
störfum fyrir Væringjafélagið, en hefur ávallt starfað
mikið fyrir K. F. U. M. Pétur var flokksforingi um 3ja
ára skeið. Jafnframt var hann lúðurþeytai’i. Hann lézt
ungur. Filippus var flokksforingi um 3 ára skeið og
jafnframt fánaberi.
Pað þykir rétt að geta þess hér, að búningur Væringja
mun hafa verið sniðinn eftir húningum dönsku K. F. U.
M. skátanna. Ársæll lieit. Gunnarsson hafði kymizt starf-
semi skátanna í Danmörku og var því eðlilegasl, að velja
þann búning er skátar K. F. U. M. notuðu, og nota enn
þann dag i dag. Skátar í Skátafélagi Reykjavíkur not-
uðu ekki samlitan búning, heldur húning mjög svipað-
an og nú er notaður af öllum íslenzkum skátum. Flest
öll ckátafélög hér á landi hafa lekið upp þann sið eftir
Væringjum, að nefna félögin sérstöku nafni, en kenna
félagið ekki við þann stað er þau starfa á, og er það
ólíkt skemmtilegra og skátalegra.
I bók frá þessum timum er Ársadl lieit. Gunnarsson
lét eftir sig hefur hann skrásett eftirfarandi viðvíkjandi
Væringjafélaginu: „Væringjafélagið er sömu lögum liáð og
skátafélögin og notar einkennisbúning (grænan) þeirra.
Væringjafélaginu er skipt niður i flokka. í hverjum flokk
eru 6—8 drengir. Fyrir flokknum ræður flokksforingi, sem
sér um æfingar og ber ábyrgð' á gjörðum flokksins. Tveir
flokkar mynda hálfdeild og ræður hálfdeildarforingi
fyrir henni. Hann aðstoðar flokksforingjana og sér um
að flokkarnir fái næga æfingu. Auk þess heldur liann
dagbók yfir æfingar þeirra. Við bver mánaðamót sýn-
ir flokksforinginn honum viðveruskrá flokksins og skil-
ar mánaðargjöldum“. Af þessu geta menn séð, að Vær-
ingjar liafa þá strax fullkomlega tekið skátakerfið í sína