Eimreiðin - 01.04.1954, Side 11
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
83
undan fæti fyrir íslenzkri þjóð“ og að dýrkeyptu þjóðfrelsi hafi
verið teflt í vaxandi voða, „unz við þraukum nú í hernumdu
landi, þar sem útlend herstjórn fer sínu fram, ef henni býður svo
við að horfa“.
Islendingur, málgagn Sjálfstæðisflokksins á Akureyri,
drepur í forustugrein sinni 16. júní á orðsendingu Kristjáns kon-
ungs X. frá árinu 1944 um, að það geti verið „miður farsælt
fyrir hið góða bræðralag" milli íslands og Danmerkur, ef ís-
lend ingar taki framtíðaráform um stjórnskipun sína, meðan bæði
löndin séu hersetin, og tekur upp orðrétt hina ákveðnu yfirlýs-
ingu íslenzku ríkisstjórnarinnar og stjórnmálaflokkanna út af
þessari orðsendingu konungs. Síðan bendir blaðið á hin glæsilegu
úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar sama ár og þær miklu fram-
farir, sem orðið hafa í landinu á fyrsta áratug lýðveldisins. „Við
niinnumst því á morgun unninna sigra og stórra áforma lítillar
Þjóðar í landi mikilla möguleika", bætir blaðið við.
í IVI o r g u n b I a ð i ð 17. júní ritar Bjarni Benediktsson, dóms-
niálaráðherra, grein undir fyrirsögninni: „íslendingar hafa treyst
öryggj 0g sjálfstæði lýðveldis síns“. Ræðir þar einkum um varnir
landsins, og kemst höfundurinn að orði á þessa leið: „Þegar
sæmilegur friður verður kominn á í heiminum og hættan á stór-
styrjöld liðin hjá er sjálfsagt, að erlent varnarlið hverfi frá ís-
landi sem öðrum löndum, sem svipað stendur á um“.
Tíminn bendir á það í forystugrein 17. júní, „Tíu ára af-
niæli lýðveldisins", að þó að nazismanum hafi verið steypt af
stóli í Evrópu, hafi ný ofbeldisstefna, sem stefni að heimsyfir-
ráðum, orðið arftaki nazismans, og lýsir blaðið í því sambandi
hvernig fylkingu verkamanna á kröfugöngu í Austur-Berlín, 17.
júní 1953, hafi verið sundrað með kúlnahríð úr útlendum skrið-
drekum og foringjum þeirra varpað í dýflissu eða þeir sendir
i þrælkunarvinnu. „Það er til að sporna gegn slíkum örlögum,
sem hinar frjálsu þjóðir Evrópu ásamt Bandaríkjunum og Kanada,
hafa stofnað með sér varnarsamtök til tryggingar friði og frelsi.
'----íslendingar hafa talið sér skylt vegna hinna sameiginlegu
varna í þágu friðar og frelsis að leyfa nokkra hersetu í landi“.
Gi'eininni lýkur með þeirri ósk, að senn verði svo friðvænlegt í
hei minum, að vér getum búið einir í landi voru.
Varðberg, málgagn Lýðveldisflokksins, vítir, 16. júní, vinnu-
brögð stjórnmálaforingja og alþingis í stjórnarskrármálinu, undir
tyrirsögninni: „Stjórnarskrármálið og tíu ára afmæli lýðveldis-
'ns“ og spáir því, að dagblöðin muni ekki minnast á þetta stór-