Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 22

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 22
94 RlKI OG KIRKJA EIMREIÐIN kirkjuna, sem aldrei hefur verið sérstök ríkiskirkja í sama skiln- ingi og hér er átt við; heldur má miklu fremur telja hana oft og einatt „ríki í ríkinu“, — hún hefur átt sig sjálf, haldið sjálfri sér uppi og stjórnað sér sjálf frá efst til neðst. En þar sem siða- skiptin komust á (á 16. öld), og sá trúarlærdómur, er þeim fylgdi, varð að kalla alþjóðareign, þótt brösótt gengi framan af og hreina bylting þjrrfti til í aðbúnaði og afkomu kirkjunnar, varð óhjákvæmilegt, að hin „nýja“ kirkja, er rænd var arfi hinnar „gömlu“, yrði að njóta aðstoðar ríkisvaldsins til uppi- halds síns til frambúðar, hvert svo sem þjóðskipulagið að öðru leyti var, enda þurftu ríkisstjórnendur eigi sjaldan á aðstoð henn- ar að halda. Verða hér engin tök á að fara nánar út í það mikla mál. — En eigi fyrr en á 19. öldinni grundvallast þetta ástand i allsherjarlögum, viðhorf kirkjunnar og ríkisins innbyrðis er tekið að setja ríkjum Norðurlanda heilleg stjórnlög eða stjórnar- skrár, þar sem frumatriði mannfélags samlífs skyldu ákvörðuð, aðallega til tryggingar réttindum (mannréttindum), og að nokkru greindar skyldur þjóðfélagsborgaranna, og var þetta í öndverðu, eins og vitað er, að franskri og ameriskri fyrirmynd. En þá varð líka að ákveða stöðu trúarbragðanna og kirkjunnar, ekki sízt með tilliti til svonefnds trúarbragðafrelsis, — eins og kröfur voru háværar uppi um á öðrum sviðum þjóðlífsins — og varð þá jafnframt eigi undan því komizt að skilgreina að nokkru skyldur ríkisvaldsins við hin ráðandi kirkjufélög í hverju landi, en kalla mátti, að það yrði víðast hvar aðeins hálfkveðin vísa. Þessa eðlis var og stjórnarskráin, sem íslendingar fengu 1874 (5. jan.), að miklu leyti beinlínis sniðin eftir hinni kunnu stjórnarskrá eða grundvallarlögum Dana frá 1849 (5. júní), sem eðlilegt var, enda var grundvallarlaga-setningin í Danmörku fyrirmyndarverk á sínum tima. En þá höfðu reyndar Norðmenn sett sér stjórnarskrá í líkum anda fyrir all-löngu eða 1814 (17- maí), fyrstir á Norðurlöndum í þeim efnum, og hefur hún 1 fleirum greinum gilt fram á þenna dag. 1 stjórnarskrá Islands hafa ákvæðin um þjóðkirkjuna haldið sér má segja óáreitt og óbreytt frá byrjun, í öllum aðalatriðum, og hljóða þau í núgildandi stjórnarskrá eins og ég hef áður greint.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.