Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 32

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 32
104 BRÆÐURNIR EIMREIÐIN Það var bæði þröngt og kalt herbergi, en þeim fannst það dá- samlegt, og brátt gagntók starfið hug þeirra allan. Þegar að nokkrum vikum liðnum sefaðist friðleysið, sem þeir voru haldnir, og einu áhyggjurnar urðu bundnar við féleysið, sem þeir leituð- ust við að bæta úr með því að fara til fólks og kenna. Síðan hófu þeir að reisa ölturu sín og tendra fórnarelda sína. Veggtjöldin voru grá og hvít. Á hverri voð allt í kring í her- berginu var mynd af skipsstefni, þar sem hinn hjálmi prýddi París faðmaði Helenu sína; en á einum stað voru dúkarnir þannig samtengdir, að París kyssti annan Paris á hnakkann, og var með fjóra fætur. Á miðju gólfinu stóð gamalt felliborð. Við annan vænginn sat Fabian langt fram á nætur með bækur sínar og pappír, en við hinn hálflá Eiríkur í ruggustól. — Segðu mér nokkuð, Fabian bróðir, mælti Eiríkur kvöld eitt, þegar hann hafði kveikt á lampanum og stjörnukort ljóshlífar- innar, merkt með títuprjóni, geislaði í allri sinni dýrð. Hyggur þú, að til sé óþekkt sál, sem nefna mætti alvitund? Þegar ég les eitthvað, virðist mér jafnan sem ég viti fyrirfram nærri allt, sem stendur í bókinni. Eiginlega þarf ég ekki að læra annað en ár- tölin og nöfnin. Mjög sjaldan hugsa ég sem svo: þetta var þó alveg nýtt. Hyggur þú ekki, að ég viti það, sem Propertius skrif- aði, þó að ég hafi aldrei lesið það? Stundum þegar við eigum varla einn ríkisdal til að kaupa fyrir miðdegisverð, virðist mér sem ég auðveldast gæti aflað mér viðurværis, ef ég blátt áfram settist niður og skrifaði alfræðibók um allt það, sem hefur gerzt og verið hugsað í heiminum. En svo varpa ég þeim heilabrotum á bug og spyr: Hvað væri unnið við að skrifa upp í tíuþúsundasta skiptið það, sem vér fyrirfram vitum ... Hefur þér aldrei dottið neitt svona lagað í hug? — Nei, því miður. Ég hef nóg með að bera mína byrði, en í stað þess að lesa situr þú allan daginn og horfir út um glugg- ann, svo skellirðu saman bókinni og segist vita allt saman. — Vel á minnzt. Hlýddu mér yfir! Það hefur þú áður gert, Fabian bróðir. Hugsaðu þér, ef þekkingin, segjum fróðleikurinn, gæti smám saman öld eftir öld orðið að meðfæddri vitneskju, með öðrum orðum: að eðlishvöt, svo að loks barnið í vöggunni byggi yfir jafnmikilli þekkingu og háskólakennarinn gerir nú ... segj- um óskýrari, og í fyrstu blátt áfram sem óþroskað fræ. Ég hygg það vissulega. Ég get ekki gefið aðra skýringu.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.