Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 34

Eimreiðin - 01.04.1954, Síða 34
106 BRÆÐURNIR EIMREIÐIN Eiríkur gerðist forvitinn, tyllti sér á tá og gægðist. Sá hann þá, að hendi var hratt brugðið milli gluggans og rennitjaldsins, gaf höndin nokkur merki, en henni síðan kippt jafnhratt til baka. Fabian stóð kyrr og beið. Honum fannst tíminn vera lengi að líða, og vorvindurinn þaut svo napurt, að hann varð að bretta upp frakkakragann, en loks kom stúlka út úr húsinu, bar körfu og fylgdist með honum eftir götunni. Þau hvorki tókust í hend- ur né leiddust, og hún hafði enga hanzka. Þegar þau voru horfin og komin út í sveit, gekk Eiríkur ör- uggum skrefum að hliðinu, opnaði það og skellti því í lás á eftir sér, svo að hrikti í, staurarnir hristust og kóngulærnar þutu með írafári um döggvaða vefi sína í rjáfrinu. Þegar hann kom í þak- herbergið, tók hann eftir því, að bróðir hans hafði verið lengur á fótum en venjulega, því að tóbaksreykurinn fyllti allt herbergið eins og þétt ský. Hann þóttist líka skynja, að Fabian hefði starf- að alla nóttina, því að bækurnar lágu opnar, rúmið var óhreyft og steinolían öll brunnin úr lampanum. Hann opnaði gluggann til að fá ferskt loft. — Stóri bróðir, sagði hann upphátt, fyrr hefði ég búizt við að heyra steinana syngja en lifa þetta. Hann reyndi að hlæja, en honum mistókst það algerlega. Héðan af þurfti hann vissulega ekki að sitja og fletta blöðum og hlýða á eggjunarorð, en gat gert það, sem hann óskaði helzt. Su staðreynd fullnægði honum samt ekki. Miklu fremur olli ein- manaleikinn honum þjáningu. Nú átti hann engan að, sem hann gæti litið upp til með óblandinni virðingu. Ónotalega hafði hann verið vakinn af sínum fegursta draumi. Úti var fuglasöngur og fegurð; þaðan heyrðist mjólkurvagnaskrölt og annar hávaði, beiningabörnin höfðu á boðstólum maríulykla, en hann sneri sér frá glugganum. Árdegis kom Fabian heim í tæka tíð, en Eiríkur beit á vörina, þagði og beið þess að heyra fyrstu venjulegu brigzlyrðin. Nu vissi hann þó, hverju hann ætti að svara, og hann þráði að tala greinilega og lengi og heyra blæ myndugleikans í rödd sinni. Fabian kom inn jafnhljótt og varlega og hann var vanur, en virtist alls ekki hafa neina áminningu í huga. í stað þess kinkaði hann vingjarnlega kolli, tróð í pípu sína, grúfði sig þegar yfir bókina og hélt áfram að lesa sömu línu og hann nokkrum klukku- stundum áður hafði gert merki við með nöglinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.