Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Qupperneq 36

Eimreiðin - 01.04.1954, Qupperneq 36
108 BRÆÐURNIR EIMREIÐIN þeir voru klæddir, gengu þeir samsíða út af tröppunum. Fabian var í þvílíku uppnámi, að hann hneppti að og frá sér frakkan- um við annað hvert spor, og fyrst þegar þeir stóðu í opnu ak- hliðinu, sagði hann: — Þú veizt, að ég vil helzt vera einn. — Ég ætla heldur ekki að verða þér lengur samferða, stóri bróðir. Mér er nóg að ganga hér fram og aftur í hreina loftinu og líta við og við ofan til árinnar, sem kvikar og ólgar. — Gakktu þá líka alveg ofan að vatninu. Þar neðra er fagurt. — Ég veit, að þar neðra er fagurt, en það mundi einungis trufla mig. Ég vil aðeins rifja upp fyrir mér alvitundina. Hafðu ekki áhyggjur út af mér. Langan tíma stóð Fabian kyrr utan við hliðið, en þegar Eiríkur fjarlægðist ekki, heldur reikaði fram og aftur, stakk Fabian hönd- unum í vasana og gekk hægt burt, án þess að líta við. Þegar hann loks var horfinn bak við fjærsta horníð, gekk Eiríkur rösklega yfir götuna og sló í gluggann. Hendi var stungið milli hans og rennitjaldsins alveg eins og daginn fyrir, en hún hvarf jafnskjótt aftur. Allt fram á þessa stund hafði Eiríkur látið meinfýsna reiði án allrar yfirvegunar ráða gerðum sínum, nú fyrst fór hann að at- huga, hvað hann eiginlega ætti að segja og aðhafast, ef sú, sem átti höndina, kæmi fyrirvaralaust til hans út á auða götuna. Hann fékk líka góðan tíma til þess að hugsa, en því lengra sem leið þeim mun vandræðalegri varð hann og aðstaða hans, og hann hafði þegar snúið sér við til þess að draga sig í hlé, þegar hliðið opnaðist og stúlkan kom út. Hann þekkti hana samstundis aftur. Hún hafði sömu körfu, en enga hanzka. Honum virtist hún aðeins dálítið grennri og óþroskaðri, en sem hann veitti því at- hygli, að kjóllinn hennar var reyndar svartur og mjög látlaus, en snotur og viðfelldinn, gat hann ekki annað gert en lyfta húfunni. Hún staðnæmdist undrandi. — Þetta er sjálfsagt bróðir herra Fabians! — Mér þykir þetta leiðinlegt, ... en ég er að vísu bróðir herra Fabians. Herra Fabian hefur orðið fyrir áfalli ... hér uppi. Eiríkur drap hnúunum kæruleysislega á höfuð sér. — Er hann veikur? — Hann er orðinn dálítið ankringislegur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.