Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 51

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 51
EIMREIÐIN BRÆÐURNIR 123 ÍRgu. Konan mín ósýnilega verður aldrei gömul, og hjónaband okkar er það gæfusamasta, sem átt hefur sér stað. Stundum þegar við sitjum saman við lampann, nefni ég nafn hennar og hef yfir vísurnar, sem ég orti til hennar í æsku. Og þegar mitt enda- dægur einhverju sinni kemur, hlýtur hún að setjast við rúmið mitt, jafnljúf og hljóðlát sem ævinlega. Þegar hann talaði á þennan hátt, var sú venja ríkjandi, að gest- irnir risu úr sætum sínum og hneigðu sig fyrir auða stólnum. Loks varð hann svo gamall og beygður af sinadrætti, að hann varð að styðjast við staf, og æ sjaldnar fór hann í samsæti eða bauð nokkrum heim til sín. Hann gleymdi fomvinum sínum, og þeir gleymdu honum. Þá vaknaði hjá honum ómótstæðileg löngun til að sjá enn einu sinni borgina, er hann sem fátækur stúdent hafði ferðazt til undir sömu kápu og bróðir hans. Það var sólheitur sunnudagur í maí, og þegar hann gekk inn í dómkirkjuna, var leikið á pípuorgelið. Fólkið kom og fór, og hann settist framan við legsteininn, þar sem hann hafði átt hina beizku viðræðu við Fabian. Hann leit í huga hinar tvær fátæklegu, þröngu stofur, þar sem bróðir hans og María höfðu loks búið sér heimili, og þrátt fyrir vöntun á veraldargæðum, búið saman til dauðadags og öðlazt hamingju, sem enginn lævís afbrotamaður hafði spillt. — Mikið verður mér fyrirgefið, sagði hann, vegna þeirrar einu breytni, að ég gerðist ekki hinn lævísi afbrotamaður. Honum fannst, að myndirnar á grafhellunni væru af bróður sín- um og Maríu, hjónum, sem verið höfðu samhent og sváfu undir sama þaki þar til á dómsdegi. Fyrir sjónum hans fór að grænka umhverfis steininn, og þar reis laufskáli með skuggum og sól skini og fuglasöng. Þóroddur Guðmundsson þyddi. * Reimleikar. Skapiö þyngja, skeröa ró skuggans fyrirbæri. Glotta viö úr gætt og kró glötuö tœkifœri. Jón Jónsson Skagfiröingur.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.