Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 54

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 54
126 ÞRJÚ KVÆÐI eimheiðin MINNI TILVERUNNAR. 1 bernsku og æsku fannst mér flest til fagnaðar vera og þrifa. Samt var eitt, sem var undrið mest, — einmitt þetta — að lifa. Og auðvitað varð ég brekábarn, sem bergði á ýmsum lindum. Og svo var drengurinn draumagjarn, að hann dreymdi sig burt frá syndum! Ég fylgdi engum. Ég fór minn veg, en fljótt varð ég gleðinnar sonur, og tizku góða það taldi ég, að til skyldu vera — konur. Ég elskaði vor og vetrarmjöll og vildi hvorugu týna, og svo voru hraun og fcdleg fjöll, sem fjötruðu hugsun mína. Svo liðu dagar, svo liðu ár, og lönd ég þekkti og borgir, þar sem æxluðust eymd og fár og undarlegustu sorgir. Og seinna féll yfir lif mitt Ijós, sem lýsti að hæstu tindum og sýndi, að fært er ei dreng né drós að dreyma sig burt frá syndum. En þó að oss verði margt til meins og miska, er hækkar aldur, að vera til — það er aZltaf eins — hinn undrunarverði gcddur. Og þó að mörgum sé lífið leitt og lýðir á sliku klifi, — að allt saman verði ekki neitt, vill enginn. — Tilveran lifi!

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.