Eimreiðin - 01.04.1954, Qupperneq 75
e*MREIÐIN
NORN
147
..Bíddu, bíddu ennþá dálítið lengur,“ tautaði hún. „Ég bið þig
eins vel og ég get. Bíddu enn fram yfir daginn á morgun.“
».Hvað gerist, ef ég bíð fram yfir daginn á morgun?“
»Þá skal ég verða konan þín.“
..Hvers vegna eftir daginn á morgun?"
»Á morgun skeður nefnilega nokkuð, sem er mjög mikilvægt.
Þér er óhætt að trúa því. Þess vegna verðum við að bíða róleg
þangað til. Ég ætla að hitta þig einhvers staðar eftir morgun-
tfaginn. Og viltu lofa mér því að vera rólegur þangað til?“
En nú vildi ég alls ekki hlusta á hana lengur! Ég hlýddi á kalt
Eegnið falla úti. En inni í litla herberginu mínu var dimmt, og
®g hélt henni í faðmi mér eins og herfangi. Ég gleymdi sjálfvirð-
ingu minni, metnaði, gleymdi öllu og varð eins og rándýr. Og hún
varð feimin eins og ósnert mey, veik eins og viðkvæmt blóm----•
Baginn eftir varð ég ekki lítið hissa, er ég leit í kvöldblöðin
°g las, að Keiji Kiyama hefði verið handtekinn, sakaður um
Éjósnir. Herlögregla Bandamanna hafði annazt handtökuna. Hann
Var sakaður um að hafa selt hernaðarleyndarmál í hendur Rúss-
Urn, á meðan hann var starfsmaður við Upplýsingaþjónustu Banda-
ríkjahers; Masa Kurino var ekki nefnd á nafn, en ég taldi víst, að
hún hefði einnig verið handtekin.
En að kvöldi sama dags gekk ég inn á veitingastað, þar sem
þún hafði mælt okkur mót, og viti menn, þar situr hún og bíður
eftir mér. Hún er sælleg og sérlega vel á sig komin, þar sem hún
situr við borð í björtum, upplýstum salnum og bíður mín.
„Þetta voru meiri fréttirnar," sagði ég.
„Varstu hissa?“ sagði hún og hló fjörlega.
„Vissurðu þetta virkilega, þegar þú talaðir við mig í gær?
sPurði ég.
„Auðvitað vissi ég það. Því það var ég, sem lét handtaka hann.
„Hvað áttu við?“
„Nú skal ég skýra þetta fyrir þér. Eftir að Rauði herinn í
^anchúríu lét drepa foreldra mína, komst ég undan hingað, ein
yfirgefin, og dvaldi um sex mánaða skeið hjá frænda mínum,
Sem þá var lögregluforingi sakamáladeildar Höfuðborgar-lögreglu-
iiðsins hér.“
„Áttu við, að hann hafi beðið þig að framkvæma þetta-------?“
„Hlustaðu nú á mig,“ sagði hún blíðlega. „Kiyama var komm-
únisti áður en styrjöldin brauzt út, eins og þú veizt. Þess vegna
Srunaði öryggislögregla hernámsliðsins hann um græsku. Hún