Eimreiðin


Eimreiðin - 01.04.1954, Page 86

Eimreiðin - 01.04.1954, Page 86
158 RITSJÁ eimheiðiN sendur séu fyrir hendi eða nægileg grein gerð fyrir. En bókin er lipurt skrifuð, og margar sögurnar eru góð- ar, sumar ágætar t. d. Annexia, Fyr- irgefning, Handan við angan vorsins og Manséttuhnappar. Fleiri sögur eru dágóðar, en aðrar fremur lítils virði. Höfundur hefur allan hugann við það í lífinu, sem aflaga fer og öfugt gengur, en það út af fyrir sig er auðvitað ærið efni að fjalla um. Ef einhver glæta sést, reynist hún blekk- ing. Hornrekur lífsins eru uppáhald höfundar að fást við og skrifa um. Af þessu verður bókin einhæf, eins og einn óslitinn tónn, með dálítið óljósu undirspili, sem við og við verð- ur þó eftirtektarvert. Þegar á allt er litið, eru smásögur þessar þó með því betra af því tagi, sem út hefur komið á siðari árum. Aðeins virðist höfund vanta nægilega frjálslegt yfir- lit, nægilega djúptækan og víðfeðm- an skilning á öllum hliðum mann- lífsins. Eg er hræddur um, að hann kunni að vera of mjög bundinn ein- hverri lífsskoðun, sem hann þyrfti að losna við, til þess að verða mikill rithöfundur. Því auðfundið er, að efniviður er góður í honum. Þ. J. Pearl S. Buck: BARNIÐ, SEM ÞROSKAÐIST ALDREI. Rvík 1954 (HlaSbúS). Hin djúpvitra, skapmikla og við- kvæma Nobelsverðlauna-skáldkona Pearl S. Buck lýsir í þessari litlu bók sálarstriði og baráttu sinni út af þeim þungu örlögum, að einkabarn hennar, stúlka, varð fáviti, náði aldrei meiri þroska andlegum en fjögurra ára barn. Þar varð ekki um þokað, þrátt fyrir allar tilraunir, litla stúlk- an fékk aldrei meira vit, en með góðu og réttu uppeldi og umhyggl11 á hæli varð það þó að lokum hugg' un móðurinni, að barnsvit stúlkunn- ar sýndi gott upplag og hæfileika, ef loku hefði ekki verið skotið fyrir þroska svo snemma á ævinni. Þetta er átakanleg frásögn örviln- aðrar móður, mjög hreinskilin °8 opinská, rituð af mikilli list og na- kvæmni. Opnar hin mikla skáldkona hjarta sitt, enda auðvitað að svo mundi verða, fyrst hún fór á annað borð að skrifa um þetta viðkvænia efni. Margir eiga um sárt að binda af mörgum ástæðum, en liklega er það með þyngstu áföllum foreldra að uppgötva, að böm þeirra verði fávit- ar og að engin von sé um, að úr þvi rætist, en að þessir vesalings óvitar geti samt lifað langa ævi. Pearl Buck skrifar bók þessa i þeim tilgangi að segja öðrum foreldrum frá reynslu sinni, svo og til þess að hvetja rikisstjórnir og einstaklinga til þess, að visindaleg rannsókn fari fram um ástæður fyrir því, að börn hætta að þroskast og til þess, að hugsanleg1 sé, að úr þessu verði bætt. Þeir séra Jón Auðuns, Matthias Jónasson og Símon Jóh. Ágústsson hafa þýtt bókina, sem er 78 bls. 1 litlu broti. Bókin er gefin út af Barna- verndarfélagi Reykjavíkur, og ágóði sá, er af útgáfunni verður, rennui óskiptur til Skálatúnsheimilisins, sem er hæli handa andlega vanþroska börnum. — Þýðingin er ágæt, en nokkrar prentvillur eru í bókinni, þ° ekki skaðlegar. Þ. /• DRAUMAR HALLGRlMS JÖNS- SONAR. Hallgrimur Jónsson, skólastjóii; hefur verið draumamaður mikiU’

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.