Eimreiðin - 01.04.1954, Side 87
eimreiðin
RITSJÁ
159
^agt trúnað á drauma og safnað
lieim. Nú hafa nokkrir af þessum
di'aumum verið gefnir út (útg. Jens
Guðbjarnarson, Rvík 1954, 48 bls.).
Hér er einn: Það dreymdi mig, að
morgni 19. ágústs 1925, að Sigurður
Kristófer Pétursson vatt sér inn i
skrifstofu mina og mælti: „Ég mótti
til að lita inn um leið og ég fór
fi'amhjá.“ — Þennan dag dó Sigurð-
ur. -— Margir þessir draumar eru
taknrænir (symbólskir). Er auðvitað
°ft hægt um vik að ráða drauma á
l>ann hátt. Hitt er vitað mál, að frá
fornöld til vorra daga hafa menn trú-
c'ð á það, að draumar boðuðu ókomna
atburði, og dettur mér ekki í hug að
lengja, að svo kunni að vera, enda
l'ótt mig hafi aldrei dreymt fyrir
okomnum atburðum, svo vist sé. Geri
eg rað fyrir, að margt draumafólk
vilíi ^esa þetta kver.
Þ. J.
ÁRBÖK ÞJÖÐBANKANS 1952.
Landsbanki Islands hefur sent frá
sér fyrir nokkru árbók fyrir árið 1952
(ísafoldarprentsmiðja h.f. 1954).
Það niun hafa verið Georg heitinn
mfsson, bankastjóri, sem fyrstur fór
rita formála fyrir ársreikningum
kankans, yfirlit um hag landsins, at-
' iniluvegi, verzlun o. fl. Varð þetta
jijjög vinsælt og handhægt rit og
um bezti leiðarvísir um margt, sem
juÖ kom hag og afkomu þjóðarinnar,
'orfur og útlit. Síðan hefur þetta
Jfirlit orðið lengra og lengra og náð
yf'r fieiri greinar, nú er það, i þess-
um órgangi, hvorki meira né minna
6n kls. auk uppsláttarorða, er taka
■jfu' fullar 10 bls. Er þetta ákaflega
'óðleg ritgerð og prýðilega úr garði
Seið. Má þarna fá fjölda upplýsinga
um atvinnuvegi vora alla, verzlun og
afkomu. Aðeins er sá meinlegi galli
á, að á siðari árum er ritgerð þessi
jafnan ári á eftir áætlun, og er ótrú-
legt að svo þurfi að vera og meinlegt
mjög, hvort sem það er að kenna
bankanum eða hagstofunni. Slíkt þarf
nauðsynlega að lagfæra, og er þessi
seinagangur óþolandi, enda vafalaust
óþarfur.
Um ársreikninga bankans sjálfa er
lítið að segja, nema hagur bankans
virðist ágætur, en hagur ríkisins
fjarri því að vera góður. Gaman væri
að vita, hvort gulleign bankans, rúm-
lega 5.7 millj., er talin í gullkrónum
eða umreiknuð? Hlálegt er að telja
bankabygginguna 1 kr. virði! Er þó
húsbyggingarsjóður 10.5 millj. kr.
Aftur á móti eru hús sumra útibú-
anna talin nokkurs virði, og er þó
húsbyggingarsjóðir útibúanna rúm-
lega 3.3 millj. kr. — Virðist ekki
verulegt samræmi í þessu. En auð
vitað hefur þetta ekkert að segja
viðvíkjandi afkomu bankans, sem er
ágæt, eins og áður er sagt.
Þ. J.
ÆTTIR AUSTFIRÐINGA, eftir
Einar Jónsson, prófast á Hofi í
VopnafirÓi. 1. bindi. Einar
Bjarnason endurskoÓandi og
Benedikt Gíslason frá Hofteigi
sáu um útgáfuna. Rvík 195J
(Austfirðingafélagiö í Reykja-
vík).
Það sýnir stórhug Austfirðinga-
félagsins í Reykjavik að hefja útgáfu
hins mikla niðjatalasafns séra Einars
Jónssonar, sem legið hefur í handriti
á Landsbókasafninu um tvo tugi ára
og hefur að geyma allt að 15000
ættanúmerum. Varla má þess vænta,
að útgáfan beri sig fjárhagslega, þrátt
fyrir áhuga margra Islendinga á