Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Page 12
UPPELDI O G LESTUR
sem höfðu lítinn áhuga á lestri. Kynjaskipting milli barnanna var jöfn og einnig
bjuggu jafnmargar fjölskyldur í þéttbýli og dreifbýli. Fjórar af fjölskyldunum sem
bjuggu í dreifbýli voru búsettar í sveit en tvær voru búsettar í litlum kaupstöðum
úti á landi. Þær fjölskyldur sem búa í þéttbýli voru búsettar á höfuðborgarsvæðinu.
Haft var upp á þátttakendum þannig að leitað var til kunningja og þeir beðnir
um að hafa milligöngu um að finna fjölskyldur, utan sameiginlegs kunningjahóps,
sem væru tilbúnar til þátttöku. I einu tilviki vísuðu þátttakendur sjálfir á fjölskyldu
sem þeir þekktu.
Öflun gagna
Sem fyrr greinir fór seinni hluti gagnasöfnunar fram á tímabilinu ágúst 1995 til júlí
1996. í lok tímabilsins var rætt aftur við meðlimi þeirrar fjölskyldu sem fyrst var
talað við til að fá fram nánari upplýsingar um ýmis atriði sem höfðu komið fram í
viðtölum við hinar fjölskyldurnar. Gagna var aflað með opnum viðtölum sem fóru
fram á heimilum þátttakenda, utan eins skiptis þar sem rætt var við þátttakanda á
vinnustað hans. Lengd viðtala var um það bil hálf klukkustund þegar rætt var við
börnin en ein til ein og hálf klukkustund þegar rætt var við fullorðna þátttakendur.
I viðtölunum voru rannsóknarspurningar hafðar til hliðsjónar, en þau voru þó fyrst
og fremst byggð upp sem samtöl í kringum ákveðið þema þar sem reynt var að láta
þá þætti sem verið var að leita svara við koma eðlilega inn í samræðurnar og við-
talið jafnframt lagað að áhugasviði hvers þátttakanda til að ná fram sem flestum
blæbrigðum um venjur og viðhorf viðkomandi.
Til að sannreyna áreiðanleika gagnanna var hægt að bera frásagnir tveggja fyrri
kynslóðanna, þ.e. barnanna og foreldra þeirra, saman við það sem elsta kynslóðin
sagði og leita nánari upplýsinga ef samræmi var ekki þar á milli.
Skráning og úrvinnsla gagna
Oll viðtölin voru tekin upp á hljóðsnældur og síðan skráð orðrétt. Auk sjálfra við-
talanna voru samtöl við heimildarmenn í síma skráð niður jafnóðum svo og lýs-
ingar á heimilum þeirra. Rannsóknargögn eru um 1600 blaðsíður.
Samhliða gagnaöflun fór fram frumgreining á gögnunum og var hugmyndum
og þemum sem fram komu í einu viðtali fylgt eftir í þeim viðtölum sem á eftir
komu. Lokagreining á gögnum fór þannig fram að þau voru lesin nokkrum sinnum
yfir, dregin saman meginþemu og þau lykluð og greind með skipulegum hætti.
Gögn úr eldri viðtölum voru greind samkvæmt þeim þemum sem komu fram við
greiningu á nýju gögnunum.
Greining á fjölbreytni í tómstundastarfi
Eitt af því sem kannað var með rannsókninni var samhengið milli lestraráhuga og
annars tómstundastarfs. Til að leggja mat á fjölbreytni í tómstundavenjum þátttak-
enda voru þrír þættir skoðaðir:
í fyrsta lagi var kannað hvort þátttakendur stunduðu félagsstarf sem var skipu-
lagt af félagasamtökum eða opinberum aðilum, eða sinntu áhugamáli sem krafðist
ákveðins búnaðar. Sem dæmi um það má nefna hestamennsku og skíðaíþróttir.
10