Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 89

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 89
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, LEIFUR GEIR HAFSTEINSSON Rannsóknir Baumrind á uppeldisháttum byggja á vettvangsathugunum og viðtölum við foreldra. Til að geta byggt á stærri úrtökum hafa Lamborn og félagar (1991) hannað spurningarlista sem mæla uppeldishætti sem byggja á rannsóknum hennar. í rannsókn sinni greindu þau að fjóra framangreinda uppeldishætti: leið- andi (authoritative), skipandi (authoritarian), eftirláta (indulgent) og afskiptalausa (neglectful). Að auki setja þau fram mælingu á uppeldishættinum „viðurkenning" (autonomy) sem felur í sér að foreldri viðurkenni unglinginn sem persónu með því að virða skoðanir hans, tilfinningar og athafnir.1 Þau könnuðu þó ekki þessa síðustu mælingu í samhengi við aðrar mælingar í rannsókn sinni. Niðurstöður Lamborns og félaga (1991) benda til þess að unglingar, sem lýsa foreldrum sínum sem leiöandi, sýni jákvæðasta matið á eigin hæfni (félagshæfni, námshæfni), finni síst til streitu og depurðar (innhverfðir eiginleikar) og séu ólík- legastir til að sýna áhættuhegðun er tekur til svindls í skóla, afbrota og vímuefna- neyslu (ein breyta: fjöldi skipta sem unglingar hafa reykt, drukkið áfengi, prófað marijúana og önnur vímuefni). Þessu er öfugt farið meðal unglinga sem lýsa for- eldrum sínum sem afskiptalausum. Unglingar sem telja foreldra sína skipandi komu þokkalega út á mælingum um áhættuhegðun (sbr. hlýðni við foreldra) en þeir mátu eigin hæfni slaka. Unglingar sem draga upp mynd af foreldrum sínum sem eftir- látum hafa aftur á móti trú á eigin hæfni, fremja sjaldan afbrot en neyta vímuefna tiltölulega oft. Þeir höfðu tilhneigingu til að svindla í skóla og vanrækja nám sitt. Lamborn og félagar renna stoðum undir þessar niðurstöður sínar með framhalds- rannsókn á sömu unglingum ári síðar, sem þau segja gefa til kynna áhrif uppeldis- hátta (sjá Steinberg, Lamborn, Darling, Mounts og Dornbusch 1994). Eins og sjá má hér að framan svipar niðurstöðum þeirra til niðurstaðna Baumrind (1991a, 1991b). Hvorki Baumrind (1991a) né Lamborn og félagar (1991) kanna sérstaklega mis- munandi uppeldishætti í tengslum við tóbaksreykingar unglinga. Eins og fram hefur komið fylgja tóbaksreykingum meiri líkur á vímuefnaneyslu (sjá til dæmis Donnermeyer 1992, Sigrúnu Aðalbjarnardóttur o.fl. 1997) og því teljum við mikil- vægt að athuga tengsl þeirra við uppeldishætti. Með langtímarannsókn og því að nota vandaða mælingu, sem tekur mið af mismunandi uppeldisháttum, teljum við okkur svara ákveðinni gagnrýni sem fram hefur komið á rannsóknir á þessu sviði á alþjóðlegum vettvangi (Conrad o.fl. 1992). Að auki hefur slík rannsókn ekki verið gerð fyrr hér á landi og ætti því að vera þarft innlegg í umræðu um áhættuhegðun unglinga og forvarnarstarf. Með hliðsjón af niðurstöðum rannsókna sem greint er frá hér að framan eru tilgátur okkar þær að: 1. unglingar sem lýsa foreldrum sínum sem leiðandi séu ólíklegri til að reykja en unglingar sem lýsa foreldrum sínum sem eftirlátum, skipandi eða afskiptalausum, 2. unglingar sem meta foreldra sína háa á mælingunni viðurkenning séu ólíklegri til að reykja, 1 Þeir félagar notuðu hugtakið „autonomy" eða sjálfstæði yfir þennan uppeldishátt. Okkur finnst það hugtak geta verið misvísandi með hliðsjón af þeim atriðum sem undir þennan þátt falla (sjá nánar í næsta kafla, AÖferö) og miðað við notkun orðsins „sjálfstæði" í íslensku. 87
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.