Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 99

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Síða 99
SIGRÚN AÐALBJARNARDÓTTIR, LEIFUR GEIR HAFSTEINSSON þeir m.a. með því að tileinka sér leiðandi uppeldishætti, sem fela í sér að mörk eru sett, þau útskýrð og rædd með tilliti til sjónarmiða bæði barnanna og foreldranna. Foreldrar geta það einnig með því að viðurkenna barnið sem persónu sem felst í því að virða skoðanir þess, tilfinningar og athafnir, og vera því góð fyrirmynd með því að nota ekki tóbak. í öðru lagi virðist forvarnargildi upplýsinga um reykingar vina takmarkað, sér- staklega þegar til lengri tíma er litið. Vegna þess hve fljótt reykingar virðast breiðast út í vinahópum hafa upplýsingar um að vinir unglings reyki ekki takmarkað gildi. Þótt unglingurinn sé í reyklausum félagsskap getur það breyst á skömmum tíma. Af þessum sökum eru upplýsingar um reykingar vina ekki vel til þess fallnar að greina áhættuhópa fram í tímann hjá þeim unglingum sem eru í reyklausum félagsskap. Uppeldishættir og reykingar foreldra eru hins vegar þættir sem eru líklegri til að vera langvinnir en reykingar vina. Upplýsingar um þá þætti hafa því meira gildi í forvarnarvinnu en upplýsingar um reykingar vina. Hægt er að athuga þá fyrr, jafnvel um 11-12 ára aldur, og finna þannig þá unglinga sem eru í sérstök- um áhættuhópi og vinna að forvörnum með þeim. í forvarnarstarfi þarf að sjálfsögðu að vinna á ýmsum vettvangi að margvís- legum úrræðum. Þau sterku tengsl, sem fram koma í rannsókninni á milli reykinga unglinga annars vegar og uppeldishátta og reykinga foreldra hins vegar, minna á hve brýnt er að leita leiða til að upplýsa foreldra um eðli og gildi leiðandi uppeldis- hátta og horfa ekki fram hjá líkum á því að barn þeirra fari að reykja ef þeir reykja sjálfir. Varla þarf að taka fram að ekki er tryggt að barnið byrji ekki að reykja þótt það búi við leiðandi uppeldishætti og foreldri reyki ekki. Tóbaksreykingar og önn- ur áhættuhegðun unglinga er afleiðing flókins samspils margra þátta sem sumum hverjum er erfitt að stjórna. Rannsókn okkar sýnir aðeins að líkurnar eru minni á því að unglingurinn byrji að reykja ef hann býr við ofangreindar aðstæður. Heimildir Anastasi, A. 1990. Psychological Testing. New York, Macmillan. Baumrind, D. 1971. Current patterns of parental authority. Developmental Psychology Monograph 4:1-103. Baumrind, D. 1991a. The influence of parenting style on adolescent competence and substance use. journal ofEarly Adolescence 11:56-95. Baumrind, D. 1991b. Parenting styles and adolescent development. The Encyclopedia of Adolescence (ritstj. R. M. Lerner, A. C. Petersen og J. Brooks-Gunn), bls. 746-758. New York, Garland. Bertrand, L. D. og T. J. Abernathy. 1993. Predicting cigarette smoking among ado- lescents using cross-sectional and longitudinal approaches. Journal of School Health 63:100-105. Biglan, A., T. E. Duncan, D. V. Ary og K. Smolkowsky. 1995. Peer and parental influences on adolescent tobacco use. Journal of Behavioral Medicine 18:4. Conrad, K. M., B. R. Flay og D. Hill. 1992. Why children start smoking cigarettes. Predictors of onset. British Journal of Addiction 87:1711-1724. 97
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.