Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 105

Uppeldi og menntun - 01.01.1998, Side 105
ÞORSTEINN P. GÚSTAFSSON miðssetningar framhaldsskólans hneigjast skólarnir til þess að fullnægja aðeins þeim hluta markmiðanna sem þeim sjálfum er auðveldast og jafnframt er ódýrast að uppfylla. Að minnsta kosti er svo þrengt að framhaldsskólunum fjárhagslega að þeir bjóða aðeins upp á þær brautir sem ódýrast er að starfrækja, og það eru svo sannarlega ekki verknámsbrautirnar. Jón Torfi Jónasson (1995-1997) fjallar um ýmsar staðhæfingar sem birzt hafa um þróun skólamála á landinu. Af þeim sex staðhæfingum sem Jón Torfi tekur til skoð- unar er m.a. sú sem vitnað var til hér á undan og nefnd um mótun menntastefnu hefur sett fram, þ.e. að starfsnám á framhaldsskólastigi verði forgangsverkefni í skólamálum. Jón Torfi færir fram rök í sex liðum fyrir því að af þessu námi verði ekki á framhaldsskólastigi eins og hin opinbera stefna er og eins og hún birtist í áliti átján manna nefndarinnar. Auk þess sem að ofan er talið, þ.e. um kostnað og erlendar fyrirmyndir, nefnir Jón Torfi liði eins og eftirspurn fyrirtækja eftir nemum úr starfsnámi, flutning starfsnáms á háskólastig, stúdentshúfusóknina miklu og breytt viðhorf almennings til grunnmenntunar. Ég mun nú ræða þessi rök Jóns Torfa sem beinzt hafa að hinni opinberu stefnu í starfsnámi eins og hún birtist í plaggi nefndar um mótun menntastefnu. Jafnframt færi ég fram ýmsar athugasemdir sem styðja rök Jóns Torfa og þá skoðun hans að starfsnám í framhaldsskólum muni ekki eflast þrátt fyrir stjórnvaldsaðgerðir, stefnu- mörkun og góð áform. Eftirspurn fyrirtækja Eftirspum fyrirtækja eftir nemum, sem útskrifast hafa af tveggja ára brautum, hefur ekki skilað sér í hærri launum þessa nýja starfsfólks. Það er með öðrum orðum ekki borgað fyrir þá þekkingu sem þessar brautir eru að veita. Skilaboð markaðarins til ungmenna á þessum brautum eru því ótvíræð. Þó má vera að nemar af þessum brautum eigi greiðari aðgang að störfum. Dæmi eru um það af skógræktarbraut og ferðamálabraut Menntaskólans á Egilsstöðum. Stúdentspróf veitir engin sjálfkrafa réttindi til nokkurra starfa, en er hins vegar aðgöngumiði að framhaldsnámi. Vinnu- veitendur líta oft á það sem kost að ungt fólk hafi stúdentspróf en það eitt veitir ekki aðgang að vinnumarkaði. Sjálfur minnist ég þess að um miðjan sjöunda ára- tuginn sóttust flugfélög eftir stúdentum til náms í flugi og kostuðu jafnvel það nám. Ástæðan var sú að stúdentspróf var ekki aðeins styrk undirstöðumenntun fyrir flugnámið sjálft, heldur einnig sönnun þess að viðkomandi kunni að læra. En flug- menn þurfa eins og kunnugt er að stunda upprifjun og viðbótarnám alla starfsæv- ina. Hitt þekkist líka að atvinnurekendur vilji fólk beint úr skyldunámi til að skóla það á vinnustað. Er þá litið á stúdentspróf sem nokkurs konar ofmenntun og hætta talin á að stúdentar láti sér slík byrjunarstörf ekki nægja, hætti í vinnu til frekara náms eða meira krefjandi starfs. Flutningur starfsnáms á háskólastig Starfsnám hefur þegar flutzt á háskólastig og mun gera það í vaxandi mæli. Dæmi: Hjúkrunarnám og kennaranám var áður á sérskólastigi en nú er krafizt stúdents- prófs til þess að stunda það eins og annað háskólanám. Rekstrarfræði og fleiri við- 103
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.