Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Síða 36
Fyrst er vikið að ágöllum sem á lögunum eru. Síðan verður skyggnst í tilurð
þeirra og leitað orsaka þess hve illa okkur gengur að búa til nothæf skaða-
bótalög.
2. RÉTTINDATAFLAN
Með þeim breytingum á lögunum, sem gerðar voru á þessu ári, var komið
upp réttindatöflu (töflu margfeldisstuðla), er segir til um með hverju skal
margfalda árlegt tap til að finna ævitap. Úrdráttur úr töflunni, er sýnir fimmta
hvert gildi, er hér að neðan.
Aldur Stuðull Aldur Stuðull Aldur Stuðull
0 11,438 25 15,101 50 7,834
5 13,067 30 12,813 55 6,678
10 14,929 35 11,678 60 4,960
15 17,057 40 10,577 65 3,038
20 17,572 45 9,265 70 1,783
75 0,667
Taflan kemur í stað eins réttindastuðuls, sem var 10 samkvæmt lögum nr.
42/1996, og reglna um lækkun eftir aldri frá 26 árum.
í réttindatöfluna eru innbyggðar forsendur um tekjubreytingar með aldri, og
um skatta. Taka má sem dæmi um tekjubreytinguna, sem fólgin er í réttinda-
töflunni, að á tekjur þess sem slasast 18 ára er reiknað 30% álag, þ.e. gert er ráð
fyrir að tekjur hans eigi eftir að hækka um 30%, en sá sem slasast 29 ára fær
enga slíka hækkun. Þarna er gengið út frá því að hækkun launa fari alltaf fram
á þessu árabili. Sú forsenda er bersýnilega röng. Fólk kemur inn í atvinnulífið
á mjög mismunandi aldri. Sumir byrja ekki fyrr en um þrítugt. Það er heldur
engin algild regla að tekjur hækki með aldri. Hér á landi eru til hálaunuð störf
sem ekki eru bundin við aldur. Sem dæmi má taka háseta á frystitogara. Setjum
svo að tveir hásetar, annar 18 ára og hinn 29 ára, báðir með 4 milljónir króna
árslaun, verði 100% öryrkjar. Hinn fyrrnefndi á að fá í bætur 73,9 milljón
krónur (stuðull 18,476) en hinn 53,9 milljónir (stuðull 13,474). Meirihluti mis-
munarins liggur í því að reiknað er með að tekjur hins yngri eigi eftir að hækka
upp í 5,2 milljónir króna á ári, en hinn muni ekkert hækka. Þetta er ekki á
rökum reist. Báðir geta að sjálfsögðu átt eftir að hækka í tekjum. Þeir geta líka
lækkað, t.d. við það að þeir hætta sjósókn. Annað dæmi má taka af láglauna-
fólki. Árslaun, sem lögð eru til grundvallar, eiga ekki að vera lægri en 1,2
milljón krónur samkvæmt 7. gr. laganna (66 ára og yngri. Hér, eins og annars
staðar í þessari grein, er miðað við upphæð sem bundin er vísitöluhækkun frá
1. júlí 1993. Um 12% hækkun hefur orðið þegar þetta er skrifað). Gera má ráð
fyrir að lágmarkið muni verða notað m.a. um húsmæður. I raun verður þá
slysatjón á 18 ára húsmóður gert upp miðað við 1,56 milljón króna árslaun, en
ef hún er 29 ára miðast bæturnar við 1,2 milljón króna laun. Þetta er fráleit
188