Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 43

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 43
Minnihlutinn, tveir fulltrúar tilnefndir af Assurand0r-Soeietetet, skilaði sér- áliti. I því fólst að öll tjón skyldu gerð upp eftir staðalreglunni, nema alveg sérstaklega stæði á. Ráðuneytið féllst ekki á tillögur nefndarinnar, hvorugs hlutans. Gegn tillögu meirihlutans var það fært fram m.a. að erfitt mundi að standa á því að val milli aðferða væri endanlegt. Hefði tjónþoli t.d. valið staðalbætur en síðan komið í ljós að hin aðferðin hefði skilað honum hærri bótum, þá væri erfitt að neita um endurupptöku. Niðurstaðan varð sú að ráðu- neytið lét semja nýtt frumvarp. í því voru hinar tvær reglur meirihlutans skeyttar saman þannig að staðalreglan gilti um börn og unglinga og aðra þá sem ekki voru í atvinnulífinu, eftir að í regluna hafði verið bætt þröskuldum. Einstaklingsbundna aðferðin skyldi gilda um hina. Þar í voru settar reglur um fjárhagslegt mat í hundraðshlutum, tekjuviðmiðun, réttindastuðul og annað sem ekki er lögbundið í öðrum löndum. Því höfum við kynnst í íslensku skaða- bótalögunum. Frumvarpi ráðuneytisins var breytt lítillega í danska þinginu og varð síðan að lögum árið 1984. Eftir erfiðan aðdraganda fengu Danir þannig skaðabótalög sem voru gerólík hliðstæðum lögum í öðrum löndum. 8. DÖNSKU LÖGIN ÞÝDD Á ÍSLENSKU Þegar farið var af stað með að semja íslensk skaðabótalög var sá kostur tekinn að þýða dönsku lögin. Það reyndist illa. Dönsku lögin voru, eins og áður kom fram, sett saman úr tveimur pörtum, þar sem annar parturinn fjallaði m.a. um börn og unglinga en hinn um þá sem starfa í atvinnulífinu. Partamir pössuðu ekki saman. Þetta kom fljótt í ljós þegar farið var að nota lögin hér. Bóta- upphæðir urðu mjög misháar eftir því hvorum partinum tjónþoli tilheyrði og oft var álitamál hvoru megin tiltekinn einstaklingur skyldi lenda. Þröskuldar í bótareglum reyndust óhæfir og jafnvel í andstöðu við stjómarskrá. Var fljótlega hafist handa við að breyta lögunum. Hefur það verið gert tvívegis, fyrst frá 1. júlí 1996 og síðan frá 1. maí 1999. Með fyrri breytingunni var margföldunar- stuðull hækkaður úr 7,5 í 10 og 15% þröskuldur lækkaður í 10%. í seinna skiptið var hinum tveimur pörtum laganna skellt saman í einn. I stað eins marg- földunarstuðuls var sett réttindatafla, eins og fyrr var lýst. Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar eru íslensku skaðabótalögin orðin enn ólíkari öllum öðram skaðabótalögum heldur en þau dönsku. Ferðinni má lýsa þannig: Fyrst eltum við Dani út fyrir allar troðnar slóðir. Síðan höfum við hrakist enn lengra út í óbyggðir. 9. LOKAORÐ Þessi grein er ekki skrifuð í því augnamiði að hvetja til þess að skaðabóta- lögunum verði enn breytt. Þegar er búið að breyta þeim tvisvar með stuttu millibili með ófullnægjandi árangri. Þannig er ekki hægt að halda áfram. Nú verðum við að búa við þessi lög um sinn. En ekki getur það skaðað að menn 195
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.