Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 79

Tímarit lögfræðinga - 01.10.1999, Page 79
koma í veg fyrir möguleika hjóna til að dreifa þessum tekjum á milli sín í þeim tilvikum er aðeins annað þeirra stæði fyrir rekstrinum.32 Af þessu má ráða að reglur um skattlagningu atvinnurekstrar- og eignatekna hjóna mótast af því að koma í veg fyrir tekjudreifmgu eða skattasniðgöngu í því hagsmunasambandi sem hjúskapur er. Ekki verður því byggt á einkaréttarlegum samningi, t.d. um skiptingu eignaraðildar, hagnaðar eða taps, í skattalegu tilliti, sem samrýmist ekki því er fram kemur í 3. tölulið 1. mgr. 63. gr. laga nr. 75/1981. 5.3 Reglur um tapsfrádrátt Þegar í félagarétti er rætt um „tóm félög“, en með því er venjulega átt við eignalaust hlutafélag sem hætt hefur rekstri en hefur ekki verið formlega slitið, hefur verið bent á að stundum sjái nýir aðilar sér hag að kaupa slík „tóm félög“ og í því sambandi meðal annars tekið fram að það kunni að vera unnt að nota skatthagræði sem hið tóma félag var búið að ávinna sér í sambandi við hina nýju starfsemi.33 Bent hefur verið á að ekki væri að finna beint bann við því að tóm hlutafélög séu notuð með þessum hætti. Því hafi þó stundum verið haldið fram að slík aðferð geti verið ólögmæt. Þyki það einkum eiga við þegar hluta- félag skiptir algjörlega um eigendur og viðskiptastefnu. Væri þá unnt að halda því fram að þá væri með ólögmætum hætti farið í kringum ákvæði laga um stofnun hlutafélags þannig að hafin sé í raun ný starfsemi án þess að ákvæð- unum um lágmarkshlutafé sé fullnægt.34 Hafa ber í huga að settar hafa verið verulegar takmarkanir á að unnt sé að nýta skattaleg réttindi slíkra félaga og verða þessar reglur raktar hér. Reglur 57. gr. A laga nr. 75/1981 setja sérstök skilyrði til þess að unnt sé að nýta eftirstöðvar rekstrartapa yfirtekins félags frá fyrri árum til lækkunar á hagnaði yfirtökufélags við samruna félaga. Einungis er heimilt að nýta slíkt rekstrartap við samruna þegar umrædd félög hafa með höndum skyldan rekstur, yfirtekið félag má ekki við slitin eiga óverulegar eignir eða hafa engan rekstur með höndum. Þá verður sameining félaganna að vera gerð í venjulegum og eðlilegum rekstrartilgangi og hið yfirfærða tap verður að hafa myndast í sams konar rekstri og það félag sem við tekur hefur með höndum. Ákvæði 57. gr. A voru upphaflega lögtekin með 7. gr. laga nr. 97/1988 og komu til framkvæmda við álagningu gjaldárið 1990. í almennum athugasemd- um með frumvarpi því er varð að lögum nr. 97/1988 segir um tilganginn með lagaákvæðinu að „heimild til yfirfærslu taps við kaup eða sameiningu fyrir- tækja í óskyldum rekstri verði þrengd“. í athugasemdum með 9. gr. frumvarpsins er varð að 7. gr. laganna, segir meðal annars: 32 Alþt. 1977-1978, A-deild, bls. 2578. 33 Sjá Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög. 1995, bls. 87. 34 Sjá Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög. 1995, bls. 88. 231
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.